— GESTAPÓ —
        1, 2, 3, 4 ... 95, 96, 97  
GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 10/10/23 22:29

Er Ísland á leið í fjárhagsfen?
Fyrir oss við skulum biðja.,
því sagði af sér Bjarni Ben
blessun þjáðra Íslandsniðja..

GESTUR

Geðveikt finnst mér gaman þegar get eg þig
gert að verri manni' en mig.

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 23/9/23 14:06

Hafa allir andan misst?

GESTUR

Huppleg mey er heitt mér gaf þá hímdi eg
heima á við Holtaveg.

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 19/9/23 13:30

Notkun fólks á næturgögnum
núna þykir vera úr móð,
því klósettunum fínum fögnum
framför sú hæfir Íslands þjóð.

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 8/9/23 10:32

Stjórnmálasnillingurinn Bjarni Benediktsson varpaði fram eftirfarandi fyrriparti í Morgunblaðinu 7. september 2023:

"Villist ekki inn í skóg
ófjármagnaðra hugmynda."

Ég leyfði mér að botna þet ...

GESTUR

Svaðið brúar Bjarni vitri Bennason.
Hann er Íslands eina von.

GESTUR

Hag minn bæta hærri vextir; hús ég fæ.
Þinni íbúð af þér næ.

GESTUR

Tala ég oft tungum þremur.
Trúður er.
Illa mér við alla semur,
enda þver.

GESTUR

Hníga vinir valinn í og veill ég er.
Þeim ég bráðum fylgja fer.

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 11/8/23 23:14

Biskupinn hann blessa ég
og bið ég fyrir prestum þeim er trúa.
Þeir ganga allir guð vors veg.
Frá glapstigum þeir vilja mönnum snúa.

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 4/8/23 21:28

Getur einhver gengið beint?
Getur Strætó komið seint?
Getur þú þér ginið treint?

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 23/7/23 21:18

"Veiztu hvað Ljóminn er ljómandi góður?"
Leiddist þér mikið er tæmdist þinn sjóður?
Vantar þig ljómandi fjörefna fóður?

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 19/7/23 13:41

"Veiztu hvað Ljóminn er ljómandi góður?"

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 11/7/23 13:59

Ef vatnið fer að frjósa
frýs.
Ef gígur fer að gjósa
gýs.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 6/7/23 23:20

Taktu aldrei trúnaðar gögn
og túðra um og birt.
Um heiðrað fólkið hafðu þögn
Hátt það ávallt virt.

GESTUR
InnleggLjóðlínan - Bullustrokkur - 29/6/23 18:11

Þú kallaðir mig kúk í viftu.

GESTUR

Ég vil öðlast trú og traust.

        1, 2, 3, 4 ... 95, 96, 97  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: