— GESTAPÓ —
        1, 2, 3, ... 91, 92, 93  
GESTUR

Loppinn stóð við skekinn skrjóð
skrýtinn sóðalegur piltur
svo á hann hlóð af miklum móð
miklu af tróði æði villtur.

GESTUR

Á fundi nú í spil er spáð
spekingar þar fjasa.
En æ er fínt ef að er gáð
innihaldið staupa og glasa.

Selur Bjarni banka af list.
Bætir þjóðarhaginn.

GESTUR

Málugur ég mörgum þótti mjög um of
og fékk því alltaf lítið lof.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 22/11/22 15:20

Blaðri ég og bulli hér
á Baggalúti
Draugfullur þá dekka er
dramm af stúti.

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 19/11/22 12:58

Á klósettinu oft ég yrki
og eftir kassans voldugt surt
eg sendinetin vona að virki
svo vel hver afurð sendist burt.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 28/10/22 19:00

Puðið meira piltar hörð er raunin.
Hugsið um að hagnist þjóð.
Hirðið ekki um launin.

GESTUR

Björn á Klofi barðist um
er Bjarni á Hofi lagð'ann
"Skal ég dofinn skitinn rum
í skáldskap lofa", sagði'ann.

Heilaþokan hefir nú
huga lokað mínum.

GESTUR
InnleggAfhendingarkeðja - Bullustrokkur - 28/10/22 18:51

Meta kunnir merginn þú og matinn feita.
Ekki þarf ég það að skreyta.

GESTUR
InnleggStikluvika-keðja - Bullustrokkur - 28/10/22 18:49

Þrjá menn sá ég sötra kók
í söluturni Manga.
Þá ég upp úr tösku tók
töflur; þetta stuðið jók.

GESTUR
InnleggSAMHENDUÞRÁÐUR - Bullustrokkur - 28/10/22 18:42

Seiminn þessi seggur dró.
Söng hann hátt og gítar sló.
Lagið hét víst gling og gló.
Gamansamt en dapurt þó.

GESTUR

Glöggur fann ég fjallstíg þann
er fimur rann ég tindinn á.
Var að kanna karskur hann.
er karlinn glannalega sá.

GESTUR

Enginn getur alla glatt
ekki er því að neita.
Ertu nú að segja satt?
Svarið mér skalt veita.

Ef þú styður Bjarna Ben
blessun þú munt hljóta.

GESTUR

Til að mynda taldir þú, að trúin mín
væri bara glens og grín.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 28/10/22 18:29

Bundið slitlag buðu út.
bik í mölina var svo lagt.
Þá drukku bændur blöndu af stút
og brunuðu um veginn. Það var sagt.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 21/10/22 17:57

Sokkinn fen í sýnist mér vor stjórnin.
Þá ég minni mat ég ét.
Mín það verður fórnin.

GESTUR

Dömufrí nú dansa skal
þá dama ný mun birtast.
Mun þá pían hafna hal.
Hann af því mun fyrtast.

Eitthvað áttir ósagt þú,
sem ekki máttir segja.

GESTUR
InnleggAfhendingarkeðja - Bullustrokkur - 21/10/22 17:49

Staðinn var að verki er ég var að stela.
Þú gerðir þessa gildru véla.

GESTUR
InnleggStikluvika-keðja - Bullustrokkur - 21/10/22 17:47

Sligar hesta, heldur feit.
Hún mun þurfa að ganga.
Upp á heiði on'í sveit.
Illa líður. Það eg veit.

        1, 2, 3, ... 91, 92, 93  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: