Er djarft að vera dónalegur?
Hleðslutæki hlær og fer
Hundar rækta jarðaber.
Liechtensein er lítið sker.
Lind þar nefnist Gerðis-Hver.
Nagladekkin undan eiga
enn þótt snjói hverja nótt.
Keðjur setja mun þó mega,
ef mikið skefur, títt og ótt
Vér skulum minnast mæðra vorra
Mjög þær þjáðust vegna oss.
Blönduós hefur brotið lag.
Í bulli er ég stud cand mag.
Fjallið Esja heillar hann
Halla, gamla brýnið.
Upp á það hann óður rann
en þá datt á trýnið.
Reikningar gefa ranga mynd
af rekstri banka
Er til svar ef enginn spyr?
Ætlar þú að fá þér skyr?
Er auður þinn í skattaskjóli?
Æseifur er erkiflón
Ísbjörg sagði: "Ég er ljón".
Ort er núna yfrið nóg.
Aldrei vaxa tré í skóg.
Notarðu ennþá næturgagn?
Er að vænta einhvurs svars?
Ætlar þú að leita vars?
Drullar þú enn í djúpan vog?
Óðum loðnar efri vör
Ekki fjölgar sleikum par.
Kvenþjóð er á kjassið spör.
Framtíðin er falin mér.
Fyrir stafni sé ég sker.
Halldór minn er heimskur mjög.
Halldór lagði að vísu drög.
Sannleikurinn svíður mér
Kallar þú mig kverúlant?
Ég er bæði lúmskur og laginn.
Lýg og stel. Það veit ei fjöldinn.
Þau gæði sem ég græði á daginn
grilla ég svo heima á kvöldin.