Fyrir austan verður grafið gull.
Greyin ekkert finna. Þetta´ er bull
Bestur flokkur býður fram
býsna rokkar hann nú feitt
Lát hann brokka. Beitum skamm-
byssum okkar fólk mitt reitt
Höndin mjúk sem fiskiflak
fór að strjúka þína.
Frosið hafa fastar eigur vinar.
Höndin bláa helköld ei
hraðfryst tak sitt linar.
Viskí er nú versta sull
Vísur eru margoft bull
Hlotnaðist mér glópagull.
Fari menn á fyllirí
flesta sína daga
Mörgu sinnum fá þeir frí
flat- þá stundum maga.
Langi þig á Litla-Hraun
löng mun verða biðin.
Öllum mönnum vil ég vel.
Víst er hart að bíta í skel.
Vor er komið. Víst það tel.
Gægsin hérna grýta öpum.
Skó af hægri hef ég alltof marga.
Vinstri fótar vantar skó.
Viltu þessu bjarga?
Reiðin magnast, ríkur brátt,
því rummungs hagnast bankar.
Þangað dragnast óður átt
eigi gagnast þankar.
Ef þú borar upp í nef
eta horið skaltu.
Fötu minni fullri´ af skít og hlandi
dembi´ ek út í dauða mörk
Dafna grös í sandi.
Rauðhetta ákvað að lötra niður Laugaveg
í ljósbláum stuttum kjóli með sótugu ferhyrndu gati.
- Ákvörðun þessi var talin fagurfræðileg
og forsendur hennar allsekki byggðar á raunsæju mati.
Ástralinn Gibbson er frá Mel
Ánamaðkar tantra sel
Hund í mínum huga fel.
Alrím Lopi ekki kann
Algrím kostar svita mann
Allím nota upp á fann
Mellusynir mjjög oft yrkja
mergjuð kvæði
Efalaust þeir æskja styrkja
út á gæði.
Útbreiðum við öskuna
Ekki held ég það sé raunin.
ok[s]Glottir eins og fífl[
.Blótar herfilega og rífur hár sitt[s]
Allir saman einn, tveir, þrír,
út nú bátur sekkur.
Björgunar- er -bátur nýr
brotinn. Þetta er hrekkur.