Er til svar ef enginn spyr?
Ætlar þú að fá þér skyr?
Er auður þinn í skattaskjóli?
Æseifur er erkiflón
Ísbjörg sagði: "Ég er ljón".
Ort er núna yfrið nóg.
Aldrei vaxa tré í skóg.
Notarðu ennþá næturgagn?
Er að vænta einhvurs svars?
Ætlar þú að leita vars?
Drullar þú enn í djúpan vog?
Óðum loðnar efri vör
Ekki fjölgar sleikum par.
Kvenþjóð er á kjassið spör.
Framtíðin er falin mér.
Fyrir stafni sé ég sker.
Halldór minn er heimskur mjög.
Halldór lagði að vísu drög.
Sannleikurinn svíður mér
Kallar þú mig kverúlant?
Ég er bæði lúmskur og laginn.
Lýg og stel. Það veit ei fjöldinn.
Þau gæði sem ég græði á daginn
grilla ég svo heima á kvöldin.
Eru verðlaun varasöm?
Var þér lygin orðin töm?
Ratast þér oft rétt á munn?
Hvað gerir bura svo breiska?
Berjið þið hestana treiska?
Kúkur er ég kallaður í laugum
Er ég svamla´ og syndi þar
sumir fara´ á taugum.
Er hægt að búa á Hómavík?
Heitir læðan Pólítík?