Endurheimtur er hann nú
hinn æðsti froskur
Sá er talinn halur hoskur
en helzt til finnst mér hann þó spozkur.
Kveðskapurinn kallar eftir
kröftum þínum, drengur
Upp er tekinn allur snjór.
Upp er tekinn gnægur mór.
Kári vill nú komast inn
um kaldan gluggann.
Miðum byssu á öfuguggann
aulinn flýr þá líkt og skruggan.
Mjólkurkaffismaðurinn
montinn er og hrokafullur.
Loforðin nú lifa vel,
þó litlar efndir séu.
Bað um feiti flesk og mjel,
fram þá nefndir stéu.
Kalt er nú á Klambratúni,
að kúra undir tréi.
Áströlsk kemur enn ein nótt
Ísland síðan nálgast..
Vínið drekk eg alltof ótt
af ofdrykkju ég sálgast.
Að vísum mínum hafa hæðst
hálærð gáfumenni.
Á sér hristir Tumi tólin.
Tóta horfir á.
Hann sig brátt mun klæða' í kjólinn
þá kynskipti' eru frá.
Beinin eru bleytt í kóki
og borðuð eftir sólarhring.
Á lofti eru kólgu klakkar
kvíði vetrartíð.
Veiztu, það fást vetrarfrakkar
víða, og nærskjól síð?
Leitaði ég þér lúsa
við Leirvogsá.
Varstu var?
Varstu þar?
Fékkstu far?
Vond er þessi vetrartíð
vefjum okkur saman.
Inniveðrin eru blíð;
upp í rúmi' er gaman.
Nú, þegar lúsin er komin á kreik
kembdu þér og fjölskyldunni.
Lest þú enn um Gretti og Glám
og gleður þig við kappa tök?
Þetta er allt víst orðið klám;
öfugugga graðra mök.
Loftið úti er fjandi fúlt
fnykur af jökulvatni.
Flyt ég bæn við brúnleitt púlt;
bið til guðs að það sjatni.
Þú ert orðinn þreyttur á stríðum
Þú vilt sitja á friðarstóli
Gulur köttur gaf af sér
góða ullarlagða,
því gat ég peysu prjónað mér
prýðilega sagða.
Varstu var?
Spurðir þú mig spurningar?
Spurðir þú en fékkst ei svar?
Þú ert alveg eins og blóm,
sem áður skalf í grýttri jörð
og hægt ég bærði heitum róm
og heim svo færði í frjóan svörð.
Loksins sé ég sólardag
sunnan undir vegg.
Ei mig stöðvar epjuflag
alsber þar mig legg.
Haf sjálfur þína súru mey,
svona skrípi vil ég ekki.
Í túpum málning tollir enn
Túpera ég hárið senn
Títt má sjá í túbum menn
Á túbu Harry lék hjá Glenn
[Túbu og bassaleikari Glenn Miller band hét Harry Goodman. Harry var eldri bróðir Benny Go ...
Fagrir eru litir landnámshana
litlar gular hænur oft þá velja,
til að feðra unga sem má selja
Svía til og Belga, Frakka og Dana
Útlendingar ungagreyjum bana,
oní sig svo kaloríur telja,
því e ...