— GESTAPÓ —
        1, 2, 3 ... 59, 60, 61 ... 95, 96, 97  
GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 20/5/16 20:42

Hvenær verða kostningar?
Kannast þú við Næstabar?

GESTUR

Allt er eins og áður var.
Einn sat ég á næsta bar.

GESTUR
InnleggVísa dagsins - Bullustrokkur - 14/5/16 08:27

Á fæðingardegi forsetans
ég færi honum ástarkveðju guðs og mína.
Ég mæri hátt styrka stjórnun hans.
Störfin hans sem geislar sólar á oss skína.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 11/5/16 14:54

Sannað er að Sigmundur,
sína skatta að fullu greiddi.
Og það var leiður lygmundur,
sem landsföðurinn burtu neyddi.

GESTUR

Dabbi kóngur fer á flakk
fretandi til Bessastaða.
Hans fyrri störf og frægð tel akk
og firri Íslendinga skaða.

Davíð, Hannesar Hafsteins jafni,
heiðarlegur og fróður.

GESTUR

Viltu ekki manni malt
matarkex og ruðu.
Nei, því te og Thule kalt
Tortólar mér buðu.

Davíð Odds og Ólaf Ragnar
elskar þjóðin

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 5/5/16 10:55

Unnarjónum út ég ræ
æðrulaus að vanda
Út í kaffið eg mér fæ
þá engin veiðist branda.

GESTUR

Þannig fór með karlinn ká
kominn enn með skitu.
Slapp hann odda ati frá.
Engin vopn hann bitu.

Heima mitt er út um allt
alls staðar og hvergi.

GESTUR

Það er skiljanlegt að skarpir menn
skipuleggi glæpi.
Og þó fjandsamlega' að fjáðum enn
fjölmiðlarnir æpi.

Upplitsdjarfur alþýðupiltur
ætlar sér að taka slaginn.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 28/4/16 13:45

Bær er sá án víls og vols.
Vona' eg til hans slefandi.
Langar mig til Lindarhvols
Lífið þar er gefandi.

GESTUR

Kannast ég við þursa þrjá
þunglynda og mædda.
Aflöndum þeir eru frá.
Upplifa sig hædda.

Alþýðu er ekki hollt
yfirstétt að kanna.

GESTUR

Undanskot og penný par
pjakkar fynnast víða.
Bjarni langt af lýðum bar
lög sá kann að smíða.

Gegnheilum og góðum mönnum
getur stundum fatast.

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 26/4/16 12:45

Færðu Texas forseta?
Finnst þér slæm mín vangeta?
Ber mér kannski' að blautfreta?

GESTUR

Fréttalestri lokið er
lítið bættist ástandið
Ólafur Ragnar fremstur fer
Forseta hann kjósum vér.

Fátt ég veit um fjármál mín
og félögin sem um þau halda.

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 25/4/16 18:09

Gaztu fundið Finn?

GESTUR
InnleggSpurningamót. - Bullustrokkur - 23/4/16 19:28

Krafði þig skattstjóri skýringa?
Skaustu í mjaltir með kýr Inga?
Minnist þú Útirauðs-Mýringa?

GESTUR

Í lakkskónum þeir limbótvist
láta virðast ísi
Af þessu ég hef alveg misst.
Er þetta' á Vísi?

Góða konan greiddi skuldir
gúrú síns og ektamanns.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 18/4/16 21:34

Óvelt var hér ýmsum steinum.
Ekki hreyfa þá.
Því það veldur mörgum meinum,
meiðist höndin blá.

        1, 2, 3 ... 59, 60, 61 ... 95, 96, 97  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: