Forvarninar fara best
ef ferðamönnum kálum
-Öllum þeim sem öfga mest
ég alltaf fylgi að málum.
Ég fylgi því forseta efni
sem flestir segja vera trompað.
Landið okkar fagra fríða
fönnum þakið núna er.
Og glæst er fólkið, göfgast lýða.
Gleggst það sést á þér og mér.
Valkyrjur Óðins verja sína kalla
gegn vondum konum, sem ætla að nauðga þeim.
Svona oft ég horfi á heiminn:
Með haus við pung í gegnum klofið.
Á stúlkur hef ég starað dreyminn
staulast heim og einn svo sofið.
Frost er nú á Fróninu.
Feigð er vís í lóninu.
Gott var fæðí í Grjóninu.
Guðs lof fólst í tóninu.
Lögin eru vond að vada.
Vandi mun að eyma landa.
Afkoman er góð hjá Granda.
Eru bækur ólesnar?
Er það slæmt sem síversnar?
Skerum niður nýlegt brauð
og náungann við trog.
Reykjavíkurborg það bauð.
Það Bjarni vildi og.
Nefnd er gyðja egifsk, ISIS,
Ísland er við hana kennt,
Upp fer sál mín efalaust.
Íhaldið þú stundum kaust.
Borgun varla borgar sig.
Banka heldur kaupum.
Flosi Ólafsson bjó að Bergi í Borgarfirði og hneggaði inn á hljómplötu. Brennu-Flosi er þá væntanlega einhvers staðar. En hvar, veit ég ekki.
Lagabálka leiðist mér
að lesa fyrir háttinn
Svo Djöfulinn mig dreyma fer
og Disney sjónvarpsþáttinn.
Bjöggar eru betri en ríkið
banka að reka Ísalands,
Ætti að setja lok á lút?
Má leysa þennan rembihnút?
Er Brennivínið best af stút?
Búið þið til lýsi úr grút?
Á að lapra í Öskjuhlíð?
Yrkir þú á Lútnum níð?
Eru jólin ennþá til?
Áttu nokkuð kerti og spil?
Kemst þá sérhver gaur í gil?
Gaman er að skipta um skoðun.
Haginn bætti hildagrísinn mæti.
Gekk í nýjan framaflokk;
fékk á þingi sæti.
Fór að verzla á föstudaginn blakka.
Frábær verð og mikið er ég glaður.
Nú hef ég efni fínt í fjölda gjafa pakka
og fínnst að ég sé Bandaríkjamaður.
Er hægt að spyrja spjörum úr?
Er spaghettíið gott í kúr?
Er rangt að berin séu súr?