— GESTAPÓ —
     1, 2, 3 ... 61, 62, 63  
GESTUR

Blasir við í bjartri sólu Búðardalur.
Útnyrðingur er hér svalur.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 24/6/22 17:28

Hinum ríku hyglum, þá eykst gróðinn.
Fátækir þá fá víst nóg.
Fagna mun því þjóðin.

GESTUR

Skrifað er um skæting þinn í skýrzlum mínum.
Mjög það þóknast mönnum fínum.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 23/6/22 19:25

Taka má ei toppana sem stjórna.
Hlífum þeim sem hafa völd.
Hinum skulum fórna.

GESTUR

Leiðitamur lötra ég á lastavegi.
Verð ég hólpinn? Veit það eigi.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 22/6/22 15:45

Barði hún oft börnin sín og maka
sem áttu að hafa ýmislegt
unnið sér til saka.

GESTUR

Sögur þær sem segi ég og sannar eru.
Rógur eru í raun og veru.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 21/6/22 17:43

Blanda saman sönnu og lognu í hræru.
Svo í skarni skríðir þú
skaðaður á æru.

GESTUR

Lengur gætnir gumar munu grímur bera.
Áfram pestin vill hér vera.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 20/6/22 18:17

Plentí kaffi Kaninn sagði glaður.
Skrælinginn þá skrækti nó.
Skondinn þótti maður.

GESTUR

Drakk hann allar dreggjar frá mér delinn illi
Kóninn naut víst kvenna hylli.

GESTUR
InnleggVikhendukeðja - Bullustrokkur - 17/6/22 13:09

Vandann hef ég vendilega falið.
Segi aldrei sannleikann.
Sofið eða malið.

GESTUR

Sanna reyndi sína firru sekur maður.
Laug hann að sér lyndisglaður.

GESTUR

Yfir liði okkar hangir einhver dofi.
Það er eins og allir sofi.

GESTUR

Seztu nú, hinn signi fiskur
soðinn er.
Hérna er flot og fullur diskur.
Fáðu þér.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 5/6/22 22:08

Ástarljóð mörg forðum kvað ég kvendi.
Hún kallaði mig gersemina sína.
En skyndilega skæting hún mér sendi.
Skjátan las víst sjúkraskrána mína.

GESTUR

Skil ég ekki skáldin sem hér skútyrð þrátta.
Ég er eitthvað utangátta.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 31/5/22 09:17

Strandaður er ég; storknaði í fjöru
steinum og björgum hjá.
Þytharðir vindar magnandi möru
Meina mér hafi frá.

     1, 2, 3 ... 61, 62, 63  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: