Fer ég jafnan fram úr mér
ef fæ að safna myndum.
Ýmsu hafna verðum vér
ef vel þú dafna ætlar hér.
Næturfrost í norðanátt
nú mun kosti þrengja.
Sveitin hún er sælustaður sveini og meyju.
Bezt er dvöl á eyðieyju.
Satt ég verð að segja þér,
þó sjaldan það ég iðki.
Gott mér þykir gæðasmér
ef gellur saltar et eg hér..
Fikta ég við drykkju og dóp
dálítið með vinahóp.
Illir gera að mér hróp.
Ýmsan vanda það mér skóp.
Miði hraut nú mér í skaut.
Mikið tauta eg núna maður.
Prentbréf hlaut á Pétur Gaut.
Prompinn þaut eg hingað glaður.
Hef ég ekki fiman gót
fer ég varla á gólfið.
Konan sem tók mér á mót.
mælti: Far í hólfið.
Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.
Orðafoss kom út úr munni. Illur var.
Æru mína út hann bar.
Krukkur fullar á ég enn
af ýmis konar keti.
Fer ég þeim að fleygja senn
svo fyllt ég aðrar geti.
Bleyti kringlu í kaffi mínu köldu og römu
Byrja á væli vorkunsömu.
Virkur dagur vinnu hefst
verkin þurfa framgang.
Samstarfs hún við kjána krefst
Kvöl að hafa samgang.
Velkomnir þeir eru allir
sem yrkja vísur hér.
Toll af umferð taka verðum til þess að
meira verði malbikað.
Sviðið hef ég haus af kind
Hann í pottinn lét ég
Hann tók á sig mína mynd.
Matgráðugur hann nú ét ég.
Jónsgrösin mín jeg mjög reyki.
Jurtir þær ég rækta út í mó.
Þessu fylgir framandleiki
og friður, sæla, unaður og ró.
Ætt mín þótti afar kæn en ekki ég
Arkaði ég illan veg.
Skrattinn hefur skemmt sér við
að skelfa mig og hrella.
Allt hans töfra og trúðalið.
frá trúnni mig vill brella.
Ég er orðinn alltof fullur
ætla að leggja mig.
Hraðar eru hendur þegar hnupla í búðum
Kaffi, sykri, sultu og snúðum
Lífið hefur líkn mér veitt
með litagleði ríkri.
Úr mér slefið gengur greitt
með galnri fleðu slíkri.
Það er geggað gaman að
geta skeggi safnað.
Blókin reyndi að braska með
bokkur illa fengnar.
Það lögreglunar gladdi geð
að góma svona skoplegt peð.