Ég verð að játa að ég skil ekki fullkomlega hvernig þessir svokölluðu drengir okkar í turðusparkslandsliðinu ætla að fara að því að spila landsleik við forfeður vora Norðmenn á ís nú í september? Næturfrost er ekki einusinni hafið á þessum hluta landsins, hvað þá að hægt verði að finna nógu stórt svell til að spila nítíu mínútna knattleik á um miðjan dag!
Nema knattspyrnusambandið hafi samið um instant móðuharðindi við náttúruöflin finnst mér finnst nú full mikil bjartsýni að auglýsa landsleik í fótbolta á Laugardalssvelli á morgun.
Það er enn eitt dæmi um það yfirgengilega rugl er tröllriðið hefur þjóðfjelagi þessu það sem af er þessari öld að hafa leik þennan á Laugardalsvelli. Beinast liggur auðvitað við að hafa hann uppi á Öræfajökli eða Bárðarbungu en í báðum tilvikum er hæðin um 2000 metrar og nóg af ís og snjó.
Sje áhugi á þeim mun meiri athygli frá heimspressunni mætti einnig skoða að hafa leikinn uppi á Eyjafjallajökli (hæð um 1600 metrar) en þá yrði reyndar að byrja á að skafa ösku ofan af ísnum auk þess sem sú staðreynd að jökullinn er sem stendur bannsvæði gæti skapað einhver vandamál.
Minnir mig á fótboltamótið á Hvolfssvelli hér um árið...
þeim á sjálfsagt eftir að verða hált á þessu.