Langt er síðan lagði ég
leið mína inn hingað
Öll þið eruð yndisleg
ég segi það óþvingað
Skál!
Goggur minn. Jú sálina á ég. Ég geymi hana í blöndu af Admiral, malti, kóbaltsafa og baðvatni Skúla Óskarssonar einhversstaðar inn á kontór hjá mér. Hvað varðar þig annars um hana?
Skál Vimbill! Landbúnaðarráðuneytið hringdi og spurði um svepparækt. Ég svaraði: ,,Farið bara á næstu umferðareyju og reddið málinu þar."
Einmitt. Hún er heldur undarleg víman sem fæst af því að reykja Flúðasveppi. Ætluðum að færa okkur yfir í portobello en ákváðum að ráðfæra okkur við þig fyrst.