Dóttir mín er í 9.bekk í skóla hér í borg og fékk sem Íslenskuverkefni að lesa og greina Forystugrein eftir Enter sem birtist þann 9 Feb.2006.Forystugreinin heitir íslenska og fékk hún A-4 blað þar sem á annari hliðinni var umrædd forystugrein en á b.hlið átti a' svara spurningun um þessa grein.T.D 7.spurningin var,Hver er afstaða höfundar til íslenskra tungu.einnig átti að svara því hver var meginboðskapur greinarinnar og svo framvegis.Baggalútur er greinilega að færa út kvíarnar og ekki mun líða á löngu þar til allt námsefni í skólum landsins verði frá Baggalúti komið.Þá er skólakerfinu vel borgið
Kennarajussan sem kennir mér lét okkur líka gera verkefni útfrá texta sem hún stal af síðu baggalúts.
Er kennari dóttur þinnar nokkuð með vel snyrt efrivararskegg og safnar kávbojhöttum í frístundum?
Er kennarinn kanski Bagglýtingur? Ég hef heyrt spurningar tengdar Baggalúti í Meistaranum... það er líka snilld.
Skál fyrir þessu! Þetta er eflaust mesta gáfuskref sem íslenska skólakerfið hefur stigið í langan tíma.
Álit vort á íslenska menntakerfinu jókst verulega við lestur þessa fjelagsrits.
PS Nermal - hvaða spurningar tengdar Baggalúti komu í Meistaranum ? Kannski um nöfn ritstjórnarmanna, nöfn æðstu ráðamanna í Baggalútíu [Ljómar upp], hvenær Baggalútía lagði undir sig Holland, Vladikanið, Gammeldansk o.s.frv. ?
Er þetta nú ekki full langt gengið? Hvað næst? Á að láta 5. bekkinga sanna afstæðiskenninguna í eitt skipti fyrir öll?
Verður krafan að átta ára krakkar í trésmíðatíma kunni skil á byggingarstrúktúr óperuhússins í Sydney?
Að ætla börnum að skilja dýpt hins eina sanna sannleiks hlýtur að vera of langt gengið.
... nema þá að það séu einmitt blessuð saklaus börnin sem hafa hvað mestan aðgang að snilldinni... hmmm...
Ég man að þeir spiluðu Jóla/aðventulög Baggalúts og vildu fá upprunalega flytjendur, og svo komu þeir með hinar mjög svo snilldarlegu spegilsetningar. Fólk bara fattaði þær ekki.