Undarlegt er manna mögl
mysan búin flúinn
illu trúa lúin tröll
trausti öllu rúinn
Helgin kemur haustar svo
hugsanlega fljótt
einn ei dugar taktu tvo
týgulega og skjótt
Æ hvað jeg rembist
hugsun skammt endist
leggurinn svo
lasinn jeg sokka má þvo
sjálfur
ó mig svo aumann
það þarf að saum´ann
stoppa má í
dramb fyrir bí
kálfur.
Mikið öldungis er gott að sjá ykkur eftir sumarið
píkulufsupjakkarnir mínir.