— GESTAPÓ —
Félagsrit:
hundinginn
Fastagestur og  sagnaþulur.
Sálmur - 9/12/04
Skriffinnur

Ja hvur skollinn

Nú. Skriffinnur verður að standa sig. Svo hjer er eitthvað til að fíflast með. Um mig sjálfan aftur og en!

Drullufullur drekkur hann
dramm úr glasi grönnu
allar rullur rýma kann
rennandi úr könnu

Einmitt. Eins og vinur minn inuitinn mundi orða það.

   (90 af 145)  
9/12/04 11:00

Furðuvera

Langalangafi minn mælti einu sinni:

Hefur hann þetta háttalag,
heimurinn má því flíka:
fullur í gær og fullur í dag,
fullur á morgun líka.

9/12/04 11:01

bauv

Skál, hundingji.

9/12/04 11:01

Limbri

Stuttur afi minn ældi einu sinni út úr sér:

MEIRA BRENNIVÍN !

-

9/12/04 14:00

Ívar Sívertsen

Afi minn sagði allt gott...

hundinginn:
  • Fæðing hér: 23/2/04 16:56
  • Síðast á ferli: 26/12/16 12:19
  • Innlegg: 112
Eðli:
Öldungis óskólað kvekende. Kann þó hitt og þetta fyrir sjer. Getur unnið með höndunum en frekar slakur inn við höfuðbeinið. Góður inn við beinið þó og hrikalegur í ástum.
Vel vaxinn og glæsilegur í alla staði.
Fræðasvið:
Kann að lesa landakort. Þekki nokkuð vel eyju er Ísland heitir. Suður odda annarar eyju þekki jeg vel, en sú heitir Grænland. Tala íslensku ensku og dönsku vel. Einnig vel hórgengur í grænlensku. Varla hórgefandi í tælensku þýsku og frönsku. Er svosem ábauvanlegur rútubílsstjóri og hef yndi að þungum og kraftvænum trukkum. Dekkjaskipti er eitt að því sem jeg kann vel.
Æviágrip:
Æfi mín er ekki svo mikið sem byrjuð! Nema þá að kanske má segja að jeg hafi átt nokkrar ævir ef má orða það svo bauvað. Og endað hef jeg sumar þeirra. Aðrar eru í bið, eða í patt stöðu.