Þetta má jeg segja nú, þegar við Hunda höfum í dag gengið frá kaupum á hundakofa í Raukjavik.
Hreppstjóra ófjetið í Kúkavogi er hjer með dæmdur til útlegðar í Færeyjum.
Læðupúka óbermið er óheiðarlegt með eindæmum.
Pikköpp skrjóður Hunda hefur staðið hjer fyrir utan kofa ræksnið um óra tíma. Númers laus og ótryggður. En þann 12ta þessa mánaðar fór jeg og sótti nýjar númaraplötur á hann og fjekk VIKU notkunarheimild á hann, til að koma honum til skoðunar.
Heimildina setti jeg í gluggann, ásamt nýju fínu númaraplötunum. En viti menn. Nú þegar jeg kem ör þreyttur heim úr vinnu, hjá Ferskfiskverkun Flagarans, er búið að setja tilkinningu á glugga pikköppsins, ÚR UMFERÐ???
TAKK!
Kanski er jeg klikk, en jeg hef löngum sagt, að raunheima-samfjelagið á ekki við mig. Sama hvað jeg reyni að fitta inn í það, þá er eins og allt sje unnið fyrir gíg.
Nú bíð jeg þess að sjá lántökugjöld og stimpilgjöld felld niður, vegna þess að við Hunda skrifuðum undir í dag. Og jeg mátti reyða fram 410.000 Böggur.
Svo auðvitað mun húsnæðisverð hríð falla nú strax á morgun. Kofinn okkar verður sjálfsagt 5.000.000 Böggum verð minni um næstu áramót. Ef ekki fyrr.
SKÁL!!!
Þetta kalla jeg nú ekki vandamál. En takk samt Furða mín. Vildi bara deila þessu með ykkur. Alltaf gaman að sjá hversu lágt yfirvaldið getur laggst í viðleytni sinni við að gleðja þegnana.
Kúkavogur er samt ágætur á sinn hátt, ágætis fólk hérna... meðal annars ég...
Já yfirvaldið sökkar. Niður með yfirvaldið.
Hundur spyr sig hvernig stendur á því, að í hvert skipti sem jeg geri og breyti rjett, þá stekkur amtmaður upp úr skotgröf sinni á kúkar og pissar úti um allt.
Greini ég einhverja fordóma gagnvart mörgæsum í tali þínu. Það gæti þó aldrei verið að þú þjáist af pól-öfund?