— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 2/11/08
Væntanlegt

Hvað haldiði...

EIns og venjulega á þessum árstíma fara að raðast inn um alla miðla jólalög af öllum stærðum og gerðum. Ég brá á það ráð að senda inn lag í jólalagakeppni rásar 2 þannig að - já, lagið er tilbúið en þið fáið ekkert að heyra fyrr en ég veit hvort ég næ laginu í gegn og hvort það fær náð fyrir eyrum hlustenda rásar 2... Ef lagið kemst ekki í gegn um síuna þá hendi ég því hér inn eins fljótt og hægt er.

   (26 af 287)  
2/11/08 06:00

hlewagastiR

Svo ef þetta kemst í spilun á FM957 þá er boltinn farinn að rúll. Þurfum við að ræða það eitthvað?

2/11/08 06:01

Jarmi

Já sææææææææll. Maður bara í návígi við sellerí.

2/11/08 06:01

Tina St.Sebastian

<Hnussar af vandlætingu> Þannig að við eigum bara að fá að hlusta á lagið ef hinir (án efa afar smekklegu og tónelsku) hlustendur Rásar tvö ákveða að það sé ekki nógu gott í miðaldra plebbahlustir þeirra?

2/11/08 06:01

Jóakim Aðalönd

Hvaða tíser er þetta?!

Þarf ég nú að fara að rasskella þig Ívar?

2/11/08 06:01

Ívar Sívertsen

Þið fáið að heyra þetta lag hvort sem það nær spilun á rás 2 eða ekki.

2/11/08 06:01

Jóakim Aðalönd

,,rassskella" átti þetta að vera. Ívar er reyndar með svo stóran rass að það ætti að vera rasss og því ,,rasssskella".

2/11/08 06:01

Vladimir Fuckov

Þetta svarar því samt eigi alveg 100% ótvírætt hvort ,,rasss-skella" eða ,,rassss-kella" er það sem þjer áttuð við. Svona óvissa, hversu lítil sem hún er, er alltaf óþægileg.

2/11/08 06:01

Nermal

Ég vil nú bara hrósa þér Ívar fyrir að gera þetta. Vona bara að þetta gangi sem best og lagið slái í gegn. Hlakka til að heyra það.

2/11/08 01:00

Huxi

Vér munum syngja með...

2/11/08 01:02

Jóakim Aðalönd

Ég vona að allir troði tappa í eyrun, muni SkítHuxi syngja með...

2/11/08 01:02

Upprifinn

Eru bara allir að senda inn lög? hinn sem ég þekki og veit að sendi inn lag lofaði mér að heyra áður en hann vissi hvort hann kæmist inn.

2/11/08 01:02

Dula

Öllu er nú hleypt inní útvarpið. [dæsir mæðulega og glottir einsog fíll]

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!