Ég hef undangengna mánuði rannsakað tilurð óvina ríkisins og aðgerðir þeirra. Þeir eru í óða önn við að þýða allt efni sem þeir komast yfir á Norsku eins og eftirfarandi dæmi ber með sér.
Den gode Hannes
Enter - Diary
To ting:
a) filmen skal ikke Baggalúti, iallfall ikke en kontrollerende eierandel.
b) Jeg tror David det ikke Vandræðalegt?
Þetta útleggst á okkar ástkæra og ylhýra á þessa leið:
Góði Hannes
Enter — Dagbók
Tvennt:
a) Útrásarvíkingar eiga ekki Baggalút, í það minnsta ekki ráðandi hlut.
b) Þykir Davíð þetta ekkert vandræðalegt?
NÚ FÖRUM VIÐ OG BERJUM NORÐMENNINA!
Fyrr á öldum voru frændur okkar í Þrándheimum kallaðir fjallapar. Snemma beygist krókurinn því margir verða af aurum apar eins og norski olíusjóðurinn sýnir. Norðmönnum er því ekki sjálfrátt og liggur því næst við að fara og menga þá með íslenskum genum. Eru heimatökin hæg þar sem Kári, hinn erfðagreindi, er búinn að kortleggja helstu DNA ættir og ætti því að plokkað út þá sjálfboðaliða sem best henti í verknaðinn.
Verið ekki vondir við Norðmenn meðan þeir geta hugsanlega bjargað okkur frá evrópusambandinu. Betra er Noregsbandalag en Evrópubandalag.
Noregsbandalag verður bara til þess að þegar olían þrýtur hjá þeim og olíuauðurinn klárast þá mergsjúga þeir okkur. Það gerir ESB ekki!
[setur kjánalegan hatt á GóGó]
Sko, þetta fer vel við prófessorsyfirvaraskeggið og hattinn.
[bendir á GóGó og flissar]
Nei Jóakim... þegar upp verður staðið þá einmitt eigum við eftir að mergsjúga ESB. Þeir eru þegar farnir að tala um að yfirmaður sjávarútvegsmála hjá ESB verði Íslendingur.
Norski textinn í fjelagsritinu er fullt tilefni til stríðsyfirlýsingar ef sæmileg samstaða næst um slíkt hjer [Setur eliptonið í viðbragðsstöðu].
Hvaðan er annars þessi norski texti ættaður ? [Klórar sjer í höfðinu]