Ég brá mér á tónleika ásamt Aðalöndinni á laugardagskvöldið. Það var merkileg upplifun!
Laugardagskvöldið 18. maí voru haldnir tónleikar á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll. Þar voru auglýstar til leiks hljómsveitirnar Klezmer Kaos og upphitun var í höndum Múgsefjunar. Auglýst var að húsið opnaði klukkan 20 og að tónleikar hæfust klukkan 20.30. Þegar við Aðalöndin vorum að skrönglast inn um dyrnar klukkan 20.25 voru sveitarmeðlimir Múgsefjunar að drattast inn. Ég hugsaði með mér að þeir væru þá löngu búnir að gera allt klárt og væru hreinlega á leið upp á svið. Við settumst inn og keyptum bjór... og annan. Það voru liðnar 45 mínútur frá auglýstum upphafstíma tónleikana þegar Múgsefjun hóf leik. Þeir byrjuðu á sínu þekktasta lagi, Kalin slóð. Þeir hefðu betur notað eitthvað annað lag til að gera loka soundtékk. Það heyrðist lítið í gíturum og nikku en þeim mun meira í bassanum. Svo ráku lögin hvert annað. Sándið var lagað aðeins nema hvað aldrei heyrðist neitt af viti í nikkunni. Þetta rann allt í einn graut og sándaði eiginlega ömurlega... en þó ekki fyrir tilstuðlan hljóðmannsins heldur vegna þess að Múgsefjun ofhleður lögin. Þess ber þó að geta að allir meðlimir Múgsefjunar eru frábærir hljóðfæraleikarar en það skortir talsvert upp á útsetningar. Textagerð er klárlega ekki þeirra tebolli heldur. Mér þykir alltaf frekar skítt þegar upphitunarband spilar meira en 30 mínútur þegar annað band er klárlega aðalnúmerið. En Múgsefjun spiluðu í rétt um klukkutíma og voru allir komnir með meira en nóg af þeim... enda fengu þeir svo sem ekkert mikil fagnaðarlæti.
Það tók ekki langan tíma að hreinsa til á sviðinu og ekki leið á löngu þar til Klezmer Kaos birtust á sviðinu. Þessi hljómsveit er skipuð fjórum frönskum sprelligosum og einni íslenskri sprellikellingu. Klezmer Kaos er meira en bara Klezmerhljómsveit, Þetta var allt annað líf frá því sem áður gerðist á sviðinu. Allar útsetningar hófstilltar og sándið frábært. Klezmer Kaos er uppákoma, leiksýning. Þau spjalla saman með hljóðfærunum, fara í slag, tjá ást sína. Í þessari sýningu kennir ýmissa grasa. Klezmer lög sem þau léku sér með að setja í alls kyns útgáfur. Þau spiluðu líka íslensk þjóðlög í Klezmer útgáfum, Krummi svaf í Klettagjá, Góða veislu gjöra skal og Á Sprengisandi. Það er ekki margt hægt að segja um þeirra flutning annað er STÓRKOSTLEGT! Þau hafa ný lokið við að taka upp disk sem kemur út síðar á þessu ári. Það verður gaman að handfjatla hann og hlusta á hann.
Þessir tónleikar voru tvískiptir algerlega. Ef dónaskapur Múgsefjunar að hefja leik 45 mínútum of seint og að útsetningar þeirra væru vandaðri þá hefðu þessir tónleikar farið í fimm stjörnur en því er ekki að heilsa. Í raun fær Múgsefjun bara 2 stjörnur en Klezmer Kaos 5 og vega þær fimm stjörnur hærra en tvær stjörnur Múgsefjunar.
Eigi hljómaði sýnishorn það er vjer sáum á hinu sk. 'Interneti' af þessari óreiðu óskemmtilega heldur þvert á móti en sú mikilvæga spurning hefur núna vaknað hvort setja beri múgsefjun á listann yfir óvini ríkisins (bæði með stóru og litlu 'M').
Jarmi: þjóðlagatónlist austur-evrópu, gyðingatónlist, arabatónlist og þess háttar.
Vlad: hljómsveitin má alveg fara á listann en mér er það til efs að fyrirbærið sé rétt staðsett sem óvinur, meira svona sem óæskileg hegðun. Hljómsveitina má hins vegar alveg bóka fyrir slíkt athæfi - þ.e.a.s. óæskilega hegðun.
'ivar, afsakaðu afskiptasemi, en ég hef lengi haldið að klezmertónlist sé tónlist gyðinganna úr Austur-Evrópu,amk. upphaflega, og þar með afmarkað frekar skýrt.
Það er hin eiginlega skilgreining en Klezmerhljómsveitir spila oftast nær út í þessa stíla sem ég nefndi hér með. Þess vegna hefur Klezmer fengið víðari skilgreiningu enda um mjög skylda tónlistarstefnur að ræða.
Mér dettur nú helst í hug einhver organdi heavy metall þegar ég heyri nafnið Múgsefjun.