mbl.is gjörsamlega fór út fyrir öll skynsemismörk í frétt sem birtist í morgun.
Fyrirtækin nýta sér Facebook til auglýsinga
Facebook tekur nú síauknum mæli á sig mynd auglýsingamiðils og þetta eru fyrirtækin að sjálfsögðu farin að nýta sér óspart. Því til sönnunar má tiltaka „á bak við tjöldin“-myndband sem komið er á Facebook og sýnir frá upptökum á nýjustu auglýsingu Vodafone með Pétur Jóhann í aðalhlutverki. Þar er hann í hlutverki Lykla-Péturs sem býður guðhræddum sálum símnotenda í himnaríki ... Vodafone. Kirkjan á eftir að eipa!
Hvað í daunillum dúnsængum er að gerast hjá mogginu? Er búið að ráða helgarliðið í fullt starf við að skrifa ambögur? Ég verð að segja að oft hefur mér stokkið bros við skrifin á mbl.is en þetta er bara bjánalegt, fíflalegt, asnalegt. EIPA?!?
Málsóðar!
[Dregur buxurnar niður á miðjar rasskinnar, snýr kokkahúfunni á hlið og gerir eitthvað asnalegt með höndunum]
Jó´mar, tjillað´á eipinu
Það er eitthvað undarlegt í gangi á mogganu í dag .
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/03/13/sonnunargogn_lagu_vikum_ saman_a_vettvangi/
"Þá hafi þau ekki sýnt nein merki þess að dauði Kercher hefði nokkur áhrif á þau.
Þau hafi flissað, hlegið og grett sig hvort framan í annað og Kercher m.a. hafa stytt sér stundir við það á lögreglustöðinni að fara í heljarstökk.
Ehh... lík í heljarstökki?
Ætli það sé verið að skipta um eigendur á morgun og þá hugsanlega skipta um eitthvað af starfsfólkinu og þeir sem voru reknir eru að reyna að rýra gildi miðilsins... niiii varla.
Merkir þetta ekki "að apast"... svona í beinni? En það er ekki bara í dag sem eitthvað undarlegt er með málfar á mbl, það hefur verið undanfarna daga.
"Ekki er langt síðan Google lá alfarið niðri og var ónothæft öllum notendum í margar klukkustundir í lok febrúar."
"Þeir sem brjóta reglurnar verða sektaðir. Það skiptir engum toga hvort nemendurnir noti símann eða ekki."
Eipa er gott orð. Það er frábært ort, fellur vel að hljóðkerfi málsins og er ríkt að merkingu sem önnur orð ná verr. Sjálfur nam ég þetta orð af núverandi menntamálaráðherra en hún er sjálf æðisleg og hafin yfir alla gagnrýni. Eyddu því þessu óriti strax, áður en ég eipa meira yfir því.
Regína: Rétt eins og albin segir, þá er þetta vísun í apaskít. "He went apeshit" er haft um þann sem trompast gjörsamlega. Samhengi apaskíts og æsings skil ég hins vegar ekki.
Samhengi apaskíts og að ganga af göflunum ætti að vera hverjum manni ljóst sem æsir upp prímata lokaðan inni í búri. Fljótlega fær viðkomandi apaskít í andlitið.