Nú er lag á læk. Íslendingar brjóta blað í stjórnmálasögu heimsins.
Það vita það allir að ef Jóhanna Sigurðardóttir verður forsætisráðherra þá verður hún fyrsta konan á Íslandi til að verða forsætisráðherra. En það sem er enn merkilegra að hún verður fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra heims. Gaman að þessu.
Og sjer í lagi gaman ef það leiðir til þess að Enter tjái sig hjer í stórum stíl [Ljómar upp].
Vjer gleymdum að nefna eitt atriði: Þar eð Jóakim Aðalönd er því miður hættur vantar einhvern til að fyrirskipa eyðingu órita. Vjer erum reiðubúnir að taka það að oss hjer ef þjer farið fram á slíkt, alveg óháð því hvort þetta er órit eður ei.
það er óþarfi að nota umrætt innlegg í þessu sambandi.
þetta er bara skemmtileg staðreynd.
Hún verður fyrsti yfirlýsti samkynhneigði forsætisráðherra heims. Ég held og vona að þeir hafi verið ansi fleiri í gegnum tíðirnar.
Hvenær verður fyrsti hestur heims forsætisráðherra Texi.? Nógu margir asnar hafa haft embættið
Flott hjá Jóku að ulla í sallatið. Það er hin besta skemmtun. Vona bara að þessi stjórn standi sig. Hvort sem forsætisráðherra er samkynhneigður eða ekki. Annars er ég viss um að Geir er nett gay....
Alltaf þurfum við Íslendingar að toppa allt og alla. Obama ekki fyrr orðinn fyrsti forseti BNA í felulitum, en við þurfum að yfirbjóða og bjóðum upp á fyrsta kynvillta forsætisráðherrann.
Svei okkur.
Þetta er rétt hjá þér Golíat. Við getum aldrei unnað öðrum að skara fram úr. [Hengir haus]
Ég efast um að kyn og kynhneigð skipi máli hvort forsetisráðherrann sé góður eður ei.
Stenst þetta félagsrit þær kröfur sem ritstjórn Baggalúts gerir til þeirra? Eru þetta ekki allt gamlar fréttir á mbl.is? Svei!
Einstein minn, þú skalt bara fara eitthvað annað ef þú getur ekki þolað svona félagsrit.
Um félagsritun: ,,Félagsrit skulu vera fræðandi, skemmtileg og innihaldsrík."
Ég get ekki séð betur en að ritstjórn eigi að hypja sig líka ef marka má reglur hennar um félagsritun. Ég hélt að þessi vefur væri einmitt athvarf þeirra sem ekki vilja lesa innihaldslaust blaður um gamlar fréttir á öðrum vefjum. Hef ég rangt fyrir mér með það?
Hún verður fyrsta opinbera lesbían sem forsætisráðherra.
Hér í Ástralíu er sagt að 37 forsætisráðherra Nýja Sjálands hafi verið í málamyndahjónabandi. <Starir þegjandi út í loftið>
Hlégestur er snillingur:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&a mp;u=525&n=6817