— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Sálmur - 2/11/07
Bæn

Bæn Sjálfstæðismannsins sem fór flatt á útrásinni

Stjóri vor,
þú sem stýrir öllu
helgist þitt nafn
til komi þitt veldi
verði þinn vilji
svo í banka sem og ríki
gef oss í dag vort daglegt hrun
og fyrirgef oss vora útrás
svo sem vér og fyrirgefum vorum lánardrottnum
eigi leið þú oss í gjaldþrot
heldur vernda oss frá skuldum
því að þitt er ríkið,
bankinn og dýrðin
að eilífu
Davíð

   (46 af 287)  
2/11/07 10:01

Texi Everto

Á það ekki að vera:
Því að þitt er Ríkið, flokkurinn og dýrðin?

2/11/07 10:01

Álfelgur

[Þylur í sífellu]

2/11/07 10:01

Ívar Sívertsen

Texi: Nei það lítur allt út fyrir að flokkurinn vilji ekkert með Davíð hafa lengur...

2/11/07 10:01

Offari

Ég elska Davíð.

2/11/07 10:01

Ívar Sívertsen

Bíddunúvið Offari... hvað varð um Framsóknarflokkinn?

2/11/07 10:01

Offari

Davíð ætlar að verða næsti formaður Framsóknarflokksins.

2/11/07 10:01

Altmuligmanden

Æi, af hverju er alltaf verið að nýðast á flokknum? Það eru alltof margir kommar hér.

2/11/07 10:01

Ívar Sívertsen

Ef þú hefur einu sinni sagt eitthvað gegn konum, ertu þá hommi?

Þó ég gagnrýni Sjálfstæðisflokkinn þá er ég ekki kommi sko.

2/11/07 10:01

Texi Everto

[Afkommar Ívar]

2/11/07 10:01

Þarfagreinir

Guðlast er þetta. Þú hefur kallað reiði Enters yfir þig.

2/11/07 10:01

Kífinn

Nauðsyn brýtur löst. En hvort ætli þetta sé ef ekki beggja meiða?

2/11/07 10:01

Upprifinn

ég er kommi.

Niður með Davíð og niður með einkavæðinguna.

2/11/07 11:00

krossgata

Það hefur eitthvað klikkað í möntrunni... þ.e.a.s. hann leiðir einmitt alla í gjaldþrot.

2/11/07 14:01

Einstein

Mantra? Er það ekki trúartákn eða -ljóð? Ertu kannski að meina að Davíð sé átrúnaðargoð? Það er ekki fjarri lagi.

2/11/07 17:01

Herópið

Já, síðan er bara að fá hann frænda þinn Sylvian til að semja lag við ljóðið !!

2/11/07 17:02

Z. Natan Ó. Jónatanz

Þessi bæn verður án efa þekkt sem "Davíðvorið" . . . Skál !

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!