Smáríkið Ísland hefur óskað eftir fjárhagsstuðningi frá Baggalútíska heimsveldinu og hefur Baggalútíska heimsveldið sett eftirfarandi skilyrði fyrir því að lána Íslandi 40.000.000.000.000.000 króna (jafnvirði 23 bagga)
Ísland sæki um aðild að Arababandalaginu
Ísland sagi Vestfirðina af og skilji Adda Kitta Gau eftir þar.
Leikritið Gísl verði sett upp á ný og sýnt meðan skuldir endast
Hljómsveitin Júpíters verði endurreist og spili reglulega
Harðfiskur verði aflagður sem snarl en gerður að einangrun í húsveggjum
Kæstur hákarl verði ekki lengur kæstur heldur bara æstur
Bubbi Morthens verði aflagður
Hrafn Gunnlaugsson verði lagður í eyði
Hemmi Gunn verði gerður að forseta
Ingvi Hrafn verði settur í stað Hrímþursans í skjaldarmerkinu
og
Stytta af Hafnarfjarðar Gullý verði sett í stað styttunnar af Jóni Sig á Austurvelli.
Mér heyrðist á fréttum að þetta væri í nefnd og almenningur yrði fullur þátttakandi í afleiðingum en ekki aðdraganda. Málið yrði skoðað vandlega og sett á bilaða grammafónplötu þegar það strandaði í hagsmunapoti þar til fjölmiðlar fengju leið á spurningum. Þá yrði það sett á rispaðan geisladisk
Þessir hrímuðu útnáraeymingjar hafa víst ekki um margt að velja... [glottir eins og fífl]
Ég hélt að Baggalútíska heimsveldið væri búið að ákveða að yfirtaka allt heila móverkið.
Það var ekki nóg að yfirtaka 90% Íslands heldur varð að gangast í ábyrgð fyrir skuldir þeirra 10% sem eftir voru.
Getum við ekki fengið Vlad til að losa okkur við vestfirði í eitt skipti fyrir öll? Vlad á einhvern sallafínan takka til þess..
Ég var löngu búinn að losa okkur við vestfirðina sálugu, samanber félaxrit mitt Vestfjarðasalan, er ég ritaði í tilefni þessa merkisviðburðar. Það kemur svo sem ekki á óvart að enginn skildi hafa saknað þeirra.
Ívar: Oss líst vel á að fá að sjá um Vestfirði. Vjer viljum hinsvegar fá að eiga Ísafjarðardjúp og nágrenni til eigin nota því vjer komum þangað í fyrsta (!) sinn sl. sumar og gerðum óvænta uppgötvun: Þar er einhver mesta náttúrufegurð sem vjer höfum sjeð hjer á landi.
Svo viljum vjer bæta við tveimur skilyrði fyrir láninu: Að Baggalútía fái að ráða því sem hún vill ráða varðandi Seðlabankann og að Hrísey verði flutt yfir í Vestmannaeyjaklasann.
Stuðningur kemur einfaldlega ekki til greina, þetta er samsafn af óreiðumönnum sem neitar að borga skuldir annara óreiðumanna og svo eru þessir hálfvitar svo vitlausir að þeir halda að þeir sem komu þeim í þessa vitleysu með sjúkri hugmyndafræði getikomið þeim úr henni með sömu sjúku hugmyndafræðinni.
Krakkar mínir, planið er einfalt:
1) Við leyfum Vestfjörðum að lýsa yfir sjálfstæði og gerast fríríki (sbr. stefnuskrá BBV-samtakanna, sjá hér:
http://bbv1950.blog.is/blog/bbv1950/
2) Leyfum hinu nýja fríríki að eiga nafnið "Ísland", ásamt öllum tilheyrandi skuldum.
3) Finnum nýtt nafn á skuldlausa partinn af landinu sem eftir stendur. Hvernig hljómar "Garðarshólmi"?
Eða að innlima svæðið og kalla þar af leiðandi Baggalútíu, svo sem önnur svæði Baggalútíu.