Enn rýni ég drykki sem eiga að kallast bjór.
Einn af fyrstu bjórunum sem skutu upp kollinum þegar bjórbanninu var aflétt var Egils Gull. Á tímabili var hægt að fá hann, Löwenbrau og Kaiser bjór. Kaiser var allt í lagi, Löwenbrau var vondur og Egils Gubb var, er og verður viðbjóður!
Þú ert alltaf í þessum bjór rannsóknum. [flissar]
Mikið er gott að einhver skuli nenna að leggja þessar rannsóknir á sig.
Kaiser [slefar eins og Hómaer Simpson]
Það var vondur dagur þegar þeir bönnuðu hann af því að ekki var hægt að fá hann í Six pac.
Man eftri kössum af Kaiser.
Mér fannst gullið vont fyrst þegar hann kom og setti hann á svarta listann. En han er þar ekki lengur.
Annars drekk ég svo sjaldan bjór að ég er ekkert kresin.
Þessi bjórrýni þín, Ívar, minnir á ferðalag matgæðings um íslenzkt búr frá önverðri seytjándu öld. Hver er tilgangurinn með rýninni ef þú lepur bara skólp?
Tilgangurinn er að vara við bjór sem mér þykir vondur og um leið að mæra þann sem er góður.
Fjandakornið? Hvernig korn er það? Ætli það sé hægt að búa til bjór úr því?
Ég myndi hlakka til að sjá gagrýni á þá bjóra sem almennt séð þykja með þeim betri, t.d. Pilsner Urquell, einhverja af Trappe bjórunum, Duvel o.s.frv. Hvort Reinheitsgebot bjórarnir séu betri eða hinir sykruðu...það er af nógu af taka. Látum rusl bjórana eiga sig.
Komdu nú endilega með dóm á einhvern góðan bjór, þannig að allt sem minnir á Egils Sull hverfi af forsíðunni sem fyrst. Hann á ekkert betra skilið.
[Tenór] Já, astraltertugubb.
En annars, ostaskeri, fölrauður: Fræðiheitið er demonculus og á þetta við andstyggileg korn, af lymskari gerðinni. [Glottir eins og fíbbl]
[skoðar nokkra milllítra af Egils gubb í tilraunaglasi]
Sýnið fer til athugunar þar, og efnagreiningar!
Vá, ég ætlaði svoleiðis að hrauna yfir þig af því að ég var þér svo ósammála að það hálfa væri nóg þar til ég fattaði að ég var að hugsa um Gylltan Víking... Hann er góður.
Kæri hr. Sívertsen. Þakka þér fyrir þessa stuttu og réttmætu gagnrýni. Ég held ég leggist bara með þér í bjórrannsóknir, enda miklu skemmtilegri en eðlisfræðirannsóknir.
Eins gott að þú ert ekki staddur í landi þar sem mismunandi bjór er bruggaður á sveitakrám og bændagistingum hvers lands fyrir sig... Kunningi minn fór í bjórsmökkunarferð til Skotlands minnir mig, það fóru einhverjir dagar í þetta, eða vikur og þegar fríið kláraðist hafði hann smakkað um 800 tegundir. Honum fannst að mig minni Egils Sull (eða: Egils Gutl, Egils Drull) vondur en hann var dálítið fyrir Budvar eða tékkneskan Budweiser. Ég drakk hann líka á tímabili, kallaði hann alltaf Böðvar. Á dag drekk ég ekki, ég verð nefnilega ekki húsum hæfur þegar ég er drukkinn, ef ég næ því þá þar sem ég þarf flösku til að verða hífaður (þó ég drekki á 3ja til 6 mánaða fresti).