Ég hitti þrjá Gestapóa í gær og við fórum í keilu.
Ákveðið var að skella sér í keilu til að skemmta sér með Galdra, sem hverfur af landi brott innan skamms. Við gengum glaðir og hressir inn í Keiluhöllina og upp að afgreiðsluborðinu. Þar var stúlka sem tók á móti okkur. Hún sagði okkur að það væri bið eftir næstu braut en við ákváðum að skrá okkur. Þegar hún bað um nöfn þá bjóst ég við að menn notuðu leikaranöfnin sín en Jóakim Aðalönd skaut fram JÓAKIM. Við flissuðum eins og smástelpur yfir þessu. Síðan var sagt að Ívar væri næstur. Svo fór að vandast með næstu nöfn. Þarfi gekk að henni og sagði ÞARFI. Hún hváði og hann endurtók það sem áður var sagt. Enn hváði frökenin og hann sagði þá hátt og snjall ÞARFAGREINIR! Og ungfrúin setti upp eitt stærsta spurningamerki sem ég hef séð. En svo settlaðist þetta með að skrifa Þarfi. Síðan var það Galdri. Hann sagði bara Galdri og auðvitað hváði stelpubjáninn og hann endurtók það GALDRI. Hún sagði OK og við fengum skó. Við ályktuðum að greindarvísitala þessarar dömu væri varla hærri en hitastigið úti. Við settumst við brautina. Þar var her krakka sem kepptist við að öskra úr sér raddböndin og berja keilukúlum í gólfið. Við vorum búnir að koma okkur fyrir þegar við litum á skjáinn fyrir ofan brautina þá sáum við nöfn sem við könnuðumst að hluta til við... en ekki öll.
JÓAKIM
ÍVAR
TARFI
DALDRI
Við lögðumst í stólana og görguðum af hlátri. Niðurstaðan varð að afgreiðslustúlkan var ekki með litað ljóst hár... hún var með greindarvísitölu fyrir neðan sjávarhita. En þetta veitti okkur ómæld hlátursköst. Þarfi var uppnefndur nautið og Galdra töldum við kínverska hliðstæðu Long John Baldry - Huang Dong Galdri...
Eitt flaug þó að mér að óvinir ríkisins hefðu verið með afgreiðsludömuna sem handbendi sitt. Óvinir ríkisins keppast vitanlega við að niðurlægja þegna Baggalútíu og snúa út úr öllu sem þeir mögulega geta.
Ég legg til að Gestapóar skreppi saman í keilu einhvern tíman og það verði haldið mót. Menn skrái sig inn undir Gestapónöfnum og svo verði rannsakað hvern óvinir ríkisins niðurlægja sem mest.
Oss grunar að ættarnafn vort gæti valdið athyglisverðum vandræðum verði þetta einhverntíma prófað.
Svo óvinir ríkisins halda til í keiluhöllinni!
Ykkur veitir ekki af vernd forsetaembættisins næst.
Ég gleymdi öllum Tarfabröndurunum... þeir voru reyndar margir afskaplega... afsakið þeir voru allir afskaplega lélegir. Þeir gengu út á að hann væri ráðunaut, sessunaut o.s.frv.
En það væri gaman að halda Gestapómót í keilu einhvern tímann... jafnvel í tenxlum við árshátíð.
Voða raunheimasamneyti er þetta. Vitið þið ekki að þetta hefur bara í för með sér smitsjúkdóma og óþrifnað?
Starfsfólk keiluhallarinnar hefur hingað til átt í miklum vandræðum með raunheimanafn mitt, líklega yrði auðveldara fyrir mig að notast við gestapónafnið.
Ég er með harðsperrur í kviðvöðvum eftir óteljandi hlátursköst og kúluköst.
Mæli hins vegar eindregið með því að Vlad noti ættarnafnið ef hann skreppur í keilu.
[Glottir]
Þetta er bara eins ogþégar ég reyni að segja dönum nafnið mitt.. vilja endilega að það sé sænskt... drulluhalarnir þeir arna.
Miðað við að raunheimanafn Útvarpsstjóra sé svona erfitt fyrir svona kúlutyggjóstelpur þá fer maður vissulega að verða forvitinn hvað hann heitir í alvöru...
Ástina ég fann í Öskjuhlíð
inni í keiluhöll
Hún var ung og býsna andlitsfríð
en ekkert sérlega snjöll.
Já, maður hefur séð margt furðulegt á skjánum í Keiluhöllini. Snilldinn er ekki alltaf að drepa blessað starfsfólkið.
Skyldi starfsfólkið geta komið mínu þjóðlega nafni skammlaust á skjáinn? Það væri gaman að prófa.
Eitt sinn sá ég 6 stráka saman í keilu, og sá fyrsti kallaði sig "Cum"
og á skjánum stóð...
Cum
On
My
Ass
Now
Boy
Hvaða tal er þetta um 'raunheimanöfn'? Ég hélt að allir skráðu sig hér undir réttu nafni. Það gerði ég a.m.k.
[Starir þegjandi &c]
Ég er til í keilu! Blesi líka, hann tekur sig stórvel út í keiluskónum sem við keyptum hérna um árið.
Ég legg til að við skoðum þetta keilumót alvarlega í haust. Einstaklings- og líðakeppni...
Einu velti ég fyrir mér. Af hverju kusu Ívar & co. að fara í keilu rétt eftir stóran jarðskjálfta, á meðan eftirskjálftar voru enn tíðir? Eru þeir svo snauðir hæfni að þeir þurftu að treysta á aðstoð náttúruaflanna við fellingu keilanna?
Af hverju er Guðmundur í Byrginu að rífa kjaft?
Günther = Guðmundur
Zimmer = herbergi = byrgi
Elsku Ívar, sannleikanum er hver sárreiðastur, sé ég.
En Günther á fátt skylt með Guðmundi. Forliðurinn er rótskyldur hinum íslenzka forlið Gunn-, svo viljirðu þýða heiti mitt ger það þá með t.d. Gunnþór, Gunnlaugur eða Gunnar (jafnvel Gunnhildur!).
Hvað síðari lið nafns míns varðar hefur það fátt með herbergi eða byrgi að gera, íslenzk merking þess er trésmiður.
Uppnefni verða að hafa eitthvað til síns mál til að virka, en ekki vera eitthvað bull út í loftið.
Keila já.
Leikaranafnið hans Úbba er þannig að ég sagði HA þegar ég heyrði það fyrst.
Günther minn. Vitandi hverskonar galgopi ég er þá hefði þessi útúrsnúningur ekki átt að koma þér á óvart. Þetta segir okkur það að ég gæti haft eitthvað til míns máls.
Gunnþór Timburmaður. Ertu eitthvað þunnur Gunnþór minn? Reddaðu því bara með því að fara á gott fyllirí. Þá lagast allt. Ég lofa.