Ég varð vægast sagt brjálaður í dag þegar ég ætlaði að reyna að flýta bílnum mínum á verkstæði.
Ég hafði hringt á ákveðið bifreiðaverkstæði fyrir tveimur vikum og pantað tíma fyrir bílinn í bremsuviðgerðir. Í dag hringdi ég og spurði hvort ekki væri hægt að smygla honum inn á milli þar sem ég er orðinn stórhættulegur í umferðinni. Þá var mér tjáð að ég ætti ekki einu sinni pantaðan tíma. Ég tjáði óánægju mína með þessi vinnubrögð og lét vel í það skína. Mér var boðið að koma með bílinn eftir tæpan mánuð. Ef ég tæki því þá færi ég fyrr í kassa oní jörðina.
Nú er svo komið að ég er afskaplega lítið handlaginn þegar kemur að bifreiðaviðgerðum... sérstaklega þegar um stóra þunga jeppa er að ræða. Ég sé hins vegar fram á það að ataka sénsinn á því að keyra bremsulaus næstu vikur en við þetta verkstæði skipti ég ekki því menn sem ekki halda betur utan um verkbókhaldið eiga ekkert skilið að mínir peningar renni í þeirra vasa.
Pissustopp..
Ef einhver sem þetta veit um verkstæði sem gæti reddað þessu fljótlega þá þigg ég þær upplýsingar með þökkum.
Hvernig bíll er þetta sem þú ert á og ættir ekki að vera á, karlinn minn?
Einhvern tímann hringdi ég í Bifreiðaverkstæðið Topp í mikilli neyð á laugardegi, þeir tóku hann strax inn á lyftu.
Þú ert nú ljóti aulinn.
Þetta tekur 10 mínútur á þessu hræi sem þú ert á. Ætti að vita það þar sem ég er búinn að gera þetta á mínum og gerði það sjálfur.
Ef þú treystir þér til þess að aka norður á Akureyri þá á Múli réttu verkfærin til þess að kippa þessu í liðinn.
Hvaða verkstæði er þetta segi ég nú bara? Allt í lagi að maður viti það svo hægt sé að forðast að eiga við þá viðskipti.
Viltekki bara henda kvikindinu og kaupa landróverinn minn ?
En já, áttan, Nikolaj og litlu kallarnir á smiðjuveginum... bara keyra á milli með varahlutina í skottinu. Það virkar fyrir mig.
Bílkó í Smiðjuhverfinu í Kópavogi.
Og taktu Hexíu með þér... það eru svo djöfull sætir strákarnir sem vinna þarna... henni gæti meira að segja þótt gaman að fara með þér í bílastúss eftir á [Glottir]
Vá! þvílíkar viðtökur! Takk fyrir þetta!
Galdri: Þegar maður er með 10 þumalputta þá gengur þetta ekkert sérstaklega vel. Þegar maður er ekki með réttu verkfærin þá gengur þetta heldur ekki vel. Þegar þetta er allt pikkfast þá gengur þetta heldur ekki vel. Auk þess sýnist mér að ég þurfi að skipta um diskana a.m.k. að aftan.
Ætli ég prófi ekki Bíla áttuna og Max1
Annars spyr Sundlaugur hvers kyns bíll þetta er. Þetta er langur Pajero 1995 með 3000 vél.
Takk aftur fyrir ráðin.
Hvæsi, ef ég gæti, þá myndi ég kaupann en þetta er víst alltaf spurning um krónur og aura.
Jóakim, ég er ekkert sérstaklega sannfærður um að þeir tækju mér fagnandi sko...