Allt hafði gengið frekar vel fyrir sig með örfáum undantekningum og listinn yfir óvini ríkisins orðinn lengri en nokkru sinni. Laugardagskvöldið var vægast sagt fróðlegt.
Ég smyglaði mér hópnum inn í rútu og þóttist vera einn af þeim. Ferðinni var heitið af hótelinu og í nýlistasafn Budapestborgar, sem er staðsett við Hetjutorgið. Þar var tekið á móti okkur með fordrykk. Kammersveit frá ríkisóperu Budapest lék dinnertónlist og þótti mér sá hópur í hæsta máta vafasamur. Óvinaóþefurinn var kominn á hátt stig.Mér fannst kontrabassinn vera þess legur að hann gæti geymt vopn af einhverju tagi. Okkur var hleypt ásamt öðru fólki inn í aðalsalinn og fékk fólk sér þar mat. Fyrr nefnd kammersveit hélt áfram að njósna um okkur og svo kom liðsauki í formi sópransöngkonu frá fyrrnefndri ríkisóperu. Þegar þeir njósnarar höfðu lokið störfum þá tók ekki betra við. Hersveit sem dulbúin var sem kór úr sveitarfélaginu Györ stormaði inn, varnaði okkur útgöngu og fór að syngja yfir okkur ungverska áróðurssöngva. Til að reyna að afvegaleiða okkur söng hersveitin svo í lokin „Úr útsæ rísa Íslandsfjöll“ en við Hexia létum ekki slá okkur út af laginu. Eftir það smalaði hersveitin viðstöddum út fyrir húsið og hófst þar mikil skothríð. Við hlupum náttúrulega í skjól og földum okkur fyrir óvinum ríkisins sem skutu á okkur í ríflega hálftíma. Eftir það var farið inn í húsið. Skommu síðar laumuðumst við út og fórum inn á hótel. Þar beið Hexiu pappírsvinna en ég hélt áfram að hlera á hótelbarnum og sinna um leið rannsóknum á áhrinfum vökva á ónæmiskerfi líkamans. Morguninn eftir var síðan farið sömu leið til baka heim á leið.
Þetta eina kvöld telst mér til að ríflega 80 manns hafi farið á listann yfir óvini ríkisins. Vladimir fær nöfnin send ásamt öllum staðreyndum um hvern og einn og myndum.
Niðurstöður rannsókna minna á eiturefnavökvum eru þær að ég er með bráðaofnæmi fyrir eftirköstum mikillar áfengisneyslu. Það lýsir sér í uppköstum, þrútnu andliti og mikilli þreytu. Mér telst til að frá hádegi á föstudegi fram til klukkan 3 aðfararnótt laugardagsins hafi ég immbyrt 5 - 6 lítra af efnum sem vísast til myndu ekki flokkast sem heilnæm af heilbrigðisstofnunum. En ég fórna mér alltaf fyrir ríkið!
Við Hexia höfum ekki fullkannað þessar slóðir. Við munum með vorinu bregða okkur í næsta nágrenni og kanna svæði þarna ögn vestar. Rétt áður en við fórum út á flugvöll þá steyptum við stjórn Ungverjalands og tókum völdin. Hér með höfum við full yfirráð þar.
[Varpar öndinni af feginleika]
Mikið er ég fegin að ykkur tókst að koma að þessu lítilræði að steypa stjórninni og taka völd í Ungverjalandi.
Þið eruð sannar hetjur. Ég vænti þess að þið verðið bæði sæmd orðunni Hetjur Baggalútíu við fyrsta tækifæri. [Muna að senda memó til Hakuchi]
Það er alltaf gott að vita að það eru einhverjir sem eru tilbúnir að fórna sér fyrir ríkið svo að við hin getum sofið róleg. Vel gert.
Vjer fögnum mjög lokaorðum fjelagsritsins [Ljómar upp og hlakkar til að bæta mörgum nöfnum við listann yfir óvini ríkisins].
[afhendir Vlad skýrslu í fjórriti á íslensku og ungversku með skýringum, leiðbeiningum og fullt af myndum]