Farin yfir höf og lönd til að fræðast um óvini ríkisins.
Elsku hjartans galdrafyglið mitt. Ég hef reynt að tjónka við Dívu Sívertsen-DeTrix og Prímadonnu Sívertsen-DeTrix í allan dag og ekkert gengið. Það er gargað á mömmu sína. Sívertsensetrið iðar af illsku og gráti. Ég hef boðið þeim allt, sleikjó, íspinna, gosdrykki og góssið sem tekið var úr spíttbátnum útá landi um daginn en ekkert virkar. Ég náði að svæfa þær með góðgæti frá Vímusi í kvöld en þær vakna líklega afskaplega hressar í fyrramálið. Það var afskaplega illa hugsað hjá þér að fara á þessum tíma til að eiga við óvini ríkisins. Vlad hefði mátt sjá um þetta. Ég þvoði föt í dag en þau komu 5 númerum minni úr þvottavélinni. Er takkinn með tugatölunum ekki mínútumælir? Mér fannst vélin alla vega ekki fara mikið eftir honum. Takkinn með stöku númerunum, er hann ekki fyrir það hvar í forgangi þvotturinn er? Mér finnst þetta asnalegar stillingar. Mér finnst að þvottavélin okkar ætti bara að hafa tvær stillingar, þvo og ekki þvo. Straujárnið skildi eftir vörumerki sitt á þeim flíkum sem ég straujaði og uppþvottavélin skilaði affallsvatni á gólfið svo ég þurfti að skúra með nærbol af Dívu. Ferðu ekki að koma heim þarna fiðraða kakókelling?
kveðja
þinn Ívar Sívertsen
p.s. HVERNIG SLEKK ÉG LJÓSIN Á GANGINUM???
Er kakóskorturinn strax farinn að segja til sín hjá Sívertsen fjölskyldunni?
Sjáumst hressir um helgina.
Sláðu bara út rafmagninu á allri íbúðinni, þá hætta þvotta- og uppþvottavélarnar að vera með leiðindi og ljósin á ganginum slokkna.
[Tekur undir með krossgötu og Grágrími]
Barátta gegn óvinum ríkisins er þess virði að verða fyrir 'örlitlum' óþægindum.
[Emjar af hlátri] Það er alltaf hægt að fylla íbúðina af reyk, þá hljóta allir að róast...
Bíddu rólegur. Ef hún verður nógu lengi í burtu þá verður hún óhress með það þegar hún kemur heim að þær segja bara: Pabbi Pabbi, nema rétt á meðan hún tekur upp úr töskunum.
Farðu svo bara með þvottinn í hreinsun.
Ég skil alveg hvað þú ert að skrifa, en hvert er vandamálið? Þetta er bara eðlilegt, og jafnvel frekar gott ástand hjá þér, miðað við það sem flestir karlar þessa lands hafa þurft að þola undanfara áratugi.
[Vonast til að lenda aldrei í Ívars sporum]
En mikið svakalega er þetta samt fyndið.
Þetta er gargandi fyndið. Hvernig förum við einhleypingarnir eiginlega að þessu? Alla vega, ég kíki til þín annað kveld. Þá verður allt betra, með einni skál af ákavíti!