Ég hlýt að vera farinn að komast á efri ár! Það finnst mér ekki gaman!
Ég er farinn að geyspa upp úr hádegi
Ég er farinn að fá hár úr eyrunum
Ég er farinn að heyra illa
Ég er farinn að verða þreyttur í barnaafmælum
Ég er farinn að sofa stundum fyrir kl 23
Ég er farinn að geta vaknað án vesens kl 07
Ég er hættur að þola eins mikið áfengi og áður
Ég á jeppa
Ég keypti parket í janúar
Ég drekk meira kaffi en nokkru sinni fyrr!
Eru einhver ráð við þessu?
<Hrökklast hrikalega langt aftur og hrasar við í fangið á Ívari>
ALLT þetta á við mig líka.
[Í anda litaspár dagsins fyrir gula]
Við efri árum eru engin ráð. Sá aldur sem maður er á er alltaf sá efsti, því er þetta viðvarandi ástand allt til dauða. Það verður bara að lifa með þessu.
Hár úr eyrunum, oj, ég las ekki lengra.
[Stelur lífselexír konungs og svolgrar í sig]
Hér er þörf á að stofna samtök um málefni eldri borgara hér í Baggalútíu.
EMBLA?! Ég held nú frekar að ég stofni Æskulýðssamtök Baggalútíu. [hnussar þrátt fyrir ungan aldur]
Vax
heyrnartæki
orkupillur og fæðubótarefni
ólæknandi
ólæknandi
drekktu bara oftar þá jafnast þetta út
fáðu þér bara skuldahala aftan í jeppann, þá ertu einsog allir íslendingar.
Fínt að eiga parket, ef þú vilt ekki eiga það þá vantar mig ca 70 fm
Já kaffifíknin eykst oftast af því að þú drepur niður bragðlaukana og ert alltaf að reyna að muna hvernig alvöru kaffi bragðast
[hlær dátt af eigin fyndni]
Vakna... fyrir 7??
Hvurslags geðveiki er það?
Annars er ég að verða afasystir núna á næstu dögum, en er yngri sem aldrei fyrr!
Illa er fyrir þér komið. Annars á þetta flest við mig, nema eyrnahárin og parketið.
Ég er farinn að geyspa upp úr hádegi -- Ég geyspa á öllum tímum dax.
Ég er farinn að fá hár úr eyrunum -- Gerðist um tvítugt hjá mér.
Ég er farinn að heyra illa -- Hef alltaf heyrt illa.
Ég er farinn að verða þreyttur í barnaafmælum -- Ég hef ávallt HATAÐ barnaafmæli. Líka þegar ég átti afmæli.
Ég er farinn að sofa stundum fyrir kl 23 -- Ekkert mál með Imovane vinum mínum...
Ég er farinn að geta vaknað án vesens kl 07 -- Ekkert mál ef ég þarf að vakna til vinnu.
Ég er hættur að þola eins mikið áfengi og áður -- Ekki kannast ég við þetta.
Ég á jeppa -- Það er ekki ellimerki.
Ég keypti parket í janúar -- Það er ekki heldur ellimerki nema þegar það er keypt í marz.
Ég drekk meira kaffi en nokkru sinni fyrr! -- Það er ungdómsmerki. Flestir þurfa að hætta að drekka kaffi með ellinni...
Skál!