Nú er mál að linni! Kerlingarálkan hún Hexia ritaði félagsrit um meinta ráðsemi og ráðahag. Inntak skrifa hennar var einfaldlega ekki satt.
Það er hverjum karlmanni ljóst sem á annað borð hefur átt í sambandi við kvenmann að það er best að láta þær halda að þær ráði þrátt fyrir að þær geri það ekki. Karlar vita hvað um er að ræða. Ef konur átta sig ekki á þessum hlutum þá skulu þær eiga það við sig sjálfar. Konur hafa í gegnum tíðina verið með sín kvenfélög og allir verið ofsalega sáttir við það. Við karlar höfum ekki fengið að vera með félög sem kallast Karlafélög því þá hefðu konurnar í kvenfélögunum risið upp á afturlappirnar og farið að gagga hver í kapp við aðra af hneykslan
BA-GAK!
Við karlar ráðum og þar við situr! Við erum engir helvítis róbótar sem konur þykjast leyfa að ráða heldur erum við ráðvandir, ráðsettir ráðsmenn sem ráðumst síst á garðinn þar sem hann er lægstur og fáum að ráða!
Ég ræð öllu heima hjá mér, nema þegar dóttir mín er hjá mér. Þá leyfir hún mér að halda að ég ráði einhverju.
Engin karlafélög? Hmmm. Lions, Kiwanis, Frímúrarar, Round table og svo má lengi telja. Þá eru það veiðiklúbbar og -ferðir, sportið á barnum... osfrv. Vissirðu ekki af neinu af þessu Ívar?
Átti það ekki að vera „Ráðvandi og ráðagóði róbótinn" fyrirgefðu afskiptasemina Ívar minn.
BA-GAK!
,,Við stjórnvölinn höfum við staðið og stöndum þar enn. Því feeeeeeeeer sem feeeer..."
Annars er ég enn á þeirri skoðun að það er laaaaaaaangbezt að vera bara einn. Þá þarf ekkert að spekúlera í svona löguðu.
Krossgata: Jújú, ég vissi af þeim. En ég hef aldrei heyrt um t.d. Karlafélag Álftaness bara Kvenfélag Álftaness o.s.frv.
Heiðglyrnir: Nei, mér fannst það ekki ráðlegt.
Mikki mús: Já
Rauðbjörn: Nei
Jóakim: BA-GAK! sjálfur!
Ég er hlyntur því að auka veg íslensku konunnar. Mér finnst að konur megi ráða í saumaklúbbum og jafnvel mætti skoða það að kona væri í forsvari í Landsambandi saumaklúbba.
Mér finnst það bara vitleysa að reyna að eltast við það að eitt eða annað ráði. Ég hef farið þann veg að það á að ríkja lýðræði í mínum samböndum, hvort svo sem þau séu með karlmanni, konu eða bæði.
Ég er húsbóndinn á mínu heimili og ræð ýmsu, td hvort ég vaska upp eða skúra fyrst.