Uppreisn hefur verið gerð á Gestapó og hefur skæruliðahópur tekið sér ákveðið alræðisvald í að stjórna og breyta þeirri stemmningu sem sköpuð hefur verið.
„Sumt fólk telur sig þess umkomið að hafa vit fyrir öðru fólki um hvað megi segja og hvað megi ekki segja. Þetta fólk slær sér á brjóst og telur sig eitt vita hvernig annað fólk skuli haga orðum sínum. “
Skemmtiskipið Gestapó hefur verið gert að þrælaskipi. Þegar staðan er orðin sú að þeir sem fara óvægum orðum um fólk verða hörundssárir undan gagnrýni annarra þá þykir mér fokið í flest skjól! Það er ekkert launungarmál hvaða aðilar eiga í hlut en við skulum sleppa nöfnum til að byrja með.
Aðalmarkmið okkar sem sækjum þennan vettvang er að skemmta okkur og vona að við getum verið öðrum til skemmtunar. Oftar en ekki hafa menn gagnrýnt hvern annan fyrir vinnubrögð og framkomu en oftast nær í góðu. Minnugur þess er miður ágætur aðili reið hér röftum og gerði út á að tala illa um fólk. Sá var sem betur fer gerður útlægur með öllu. Annar aðili gerðist sekur um ítrekuð brot gegn þeim siðareglum sem hér gilda og var honum umsvifalaust varpað út. En þeir sem sjá um útkastið og hafa lokaorðið í þeim málum er vissulega ritstjórn því friðargæsluliðar hafa ekki nokkurt vald til þess að loka menn úti heldur geta bara eytt út miður sæmilegum innleggjum og veitt mönnum tiltal í einkapósti, sem við reyndar getum einnig gert hvert við annað.
Það að aðilar hér á Gestapó skuli telja sig yfir aðra hafnir með því að hengja sig í hina og þessa isma sem tengjast skrifum finnst mér mjög neikvæð þróun. Ég er menntaður sem prentsmiður með sérhæfingu í auglýsingagerð og vefhönnun. Ég er ekki að eyða orku minni í að fetta fingur út í uppsetningu á skrifum, ég er ekki að gera úlfalda úr þeirri mýflugu sem félagar okkar hér skrifa. Auðvitað má gagnrýna en hér erum við ekki á há-faglegum nótum heldur þannig að menn taki mið af gildandi reglum án þess að fara út í öfgar.
Sjálfur hef ég gagnrýnt einstaklinga og hópa fyrir gjörðir sínar auk þess að hafa fengið gagnrýni frá þessum aðilum. Sumir hirta mig í einkapósti, aðrir hafa gert það opinberlega. Ég hef oftast haf þann háttinn á að ég beiti einkapósti í stað þess að vera með umvöndunarlanglokur á þráðum eða í félagsritum. En nú finnst mér nóg komið. Það liggur fyrir að nú þegar hafa tveir af rótgrónustu Gestapóunum yfirgefið samkvæmið og leita á önnur mið vegna ummæla sem fallið hafa hér. Annar sagði plássi sínu lausu með félagsriti en hinn tilkynnti það í ummælakerfi fyrrnefnds félagsrits.
Mér fannst þó keyra um þverbak þegar meginþorri notenda hér á Gestapó er sagður treggefinn og að fáum sé það fært að yrkja svo vel sé. Við sem ekki höfum tök á því að læra bókmenntafræði eða höfum einfaldlega ekki áhuga á því hljótum samt að mega glíma við frónbúans barnaglingur (sem ég tel okkar ágætu ljóða- og vísnahefð vera) án þess að skapstirðir fag-idjótar séu að úthúða því.
Í skrifum þeim sem hér hafa gengið er mikið rætt um ljóðlistina. Það getur enginn skilgreint list svo vel sé. Ljóð er hægt að skilgreina en hvort eitthvert ákveðið ljóð sé list er síðan neytandans að skilgreina fyrir sig. Mér gæti þótt gaman að lesa ljóð sem hins vegar einhverjum öðrum þykja hin mestu leiðindi.
Enn fremur hefur hörð gagnrýni verið lögð fram á aðila sem vissulega eru skiptar skoðanir um en það er óþarfi að fara í pollabuxurnar, byrja að skæla og fara að éta sand þó einhver segi skamm.
Það dylst engum að ég hef verið að ræða hér umsátursástand það sem skapast hefur í kringum Gimljár hópinn. Sumt af því sem þessar sjö kraftmiklu kristalskúlur hafa gert er hrein brakandi snilld en sumt líka þannig að enginn sómi er af. Ekki mun ég taka þar dæmi um. Sorglegt þykir mér að þessi hópur skuli í einhverju pirringskasti skrifa einhvera þá mestu sjálfsdýrkunarlangloku sem ég hef séð lengi á þessum vettvangi. Það er engu líkara að þeim þyki eigin skoðun yfir skoðun annarra hafin.
Hér ganga þykir mér Gimljár liðar í einhverjum lánsfötum úr fataskáp keisarans og eigum við ekki að láta þá um að „ganga berfættir upp að höku“ á meðan við hin höldum okkar striki?
Góður pistill Ívar. Ég er ekki á förum þó svo að ég viti að engin eftirsjá væri í teningakastinu, sem verið hefur mín aðaliðja hér á Gestapó.
Maður reynir svo sem að henda inn einni og einni vísu til að lyfta Gestapó á örlítið hærra plan. Ungur lærði ég bragfræði. [Glottir við tönn]
Eins og talað út úr mínu hjarta Ívar. Ég hef nú þegar og margítrekað reynt að koma dálítilli vitsmunaglóru innfyrir skelina á Gimljárhópnum en ekki tekist. Hef ég hingað til reynt með góðu en hlýt að þurfa að hverfa frá þeirri braut og rakka þau öll sömul niður í svaðið á ómálefnalegum grundvelli því það virðist fátt annað komast fyrir innan um bókalímssniffaðann heilabörkin á þeim.
Mjög góður pistlingur er segir það sem segja þarf í þessu máli. Það er einstaklega ergilegt að einn einasti aðili skuli geta hrakið gesti í burtu hjeðan með svona skrifum. Þetta er ekki í fyrsta sinn er það gerist.
Eigi þetta að vera e.k. grín er það illa heppnað ef það leiðir til þess að gestir hrökklist í burtu eins og nú hefur gerst. Sje eigi um grín að ræða er það enn verra mál.
Varðandi spurningu krossgötu munum a.m.k. vjer halda voru striki, það er eftir allt saman ekki einhver mikill fjöldi gesta er orsakaði þetta.
Vjer vonum að þessar öldur muni lægja og menn rísi að lokum upp frá dauðum. Annað eins hefur gerst hjer.
Jóakim hefur óskað þess hér að ég og aðrir brennum í helvíti svo ef hann er ekki maður til að taka við lortum frá Gimlé, er lítil eftirsjá í honum.
Reyndar langar mig að brenna í helvíti svo ég erfi þetta ekki við andarsteikina en ef þú kastar, þarftu að vera tilbúinn til að grípa.
Drama drama...
Ég veit ekki betur en ég hafi verið búinn að lýsa þessari viku sem dramalausri.
Hvernig væri nú að hlýða svona einu sinni!
Ég tek á mig skuldina fyrir að hafa ollið þessu fjaðrafoki og veit ekki hvernig ég get látið það ógert. Eins og Ívar réttilega nefnir eru skiptar skoðanir um mig enn það gildir vel okkur öll.
Að Jóakim öðlingur sem hann er tók mig undir vermdarvæng sinn stóð honum dýrt og gerði ekki hlut minn betri. Ég er Jóakimakim ævinlega þaklátur fyrir góð orð í minn garð og allra hina sem staðið hafa upp fyrir mig hér. það eina sem ég get gert núna er að láta lítið fyrir mér fara svo plássið hér álútnum nægi öllum. og vona að Jóakim og allir aðrir förunautar hitti heim aftur til föðurhúss Baggalútsins.Ég biðst innilegrar fyrigefningar á að ég sé til, í augnablykinu langar mig heldur ekkert til þess.
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Fyrst Ívar Sívertsen getur vitnað í þessa ágætu ferskeytlu og um leið sagst ekki hafa neitt vit á bragfræði þykir mér þó sú list hér á þessu spjallsvæði vera á hærra plan komið en velflestar aðrar íslenskar vefsíður.
Þann stutta tíma sem ég hef verið aktívur hér á þessu vefsvæði hef ég leitast við að setja inn á mín félagsrit vandaðar sögur og vel gerð kvæði, miðað við eigin takmarkaða hæfileika og í samanburði við ýmsa aðra hluti sem hér eru fram settir þykir mér ég á engan hátt æðri kominn en margur annar snillingur sem hérna leynist.
Sú dramatík og kerlingarháttur sem við höfum nýverið séð er því úr erminni dreginn í sjálfsvorkunnarsemi, svo ég leyfi mér að brúka stærri byssukúlurnar. Þeir sem eru sammála mér mega endilega sýna það í orðum og taka í sama streng, í von um að ég sé ekki hið eina gests-auga sem sjái þessa atburði frá því sjónarhorni.
Meiri lætin.
Líklega er Gísli Eirríkur og Helgi sá eini sem biðst afsökunar í þessu drama öllu.
Sjáum hvernig fer þegar öldurnar lægir.
Ég hef hvort eð er engan áhuga á þessu kvæða og vísnarausi. Ég man þá tíð á Gestapó að ekkert slíkt rugl var í gangi.
Fuss.
Svona uppnám og ritdeilur getur fólk dundað sér við í sínum geðvonskuköstum fyrir mér. Vilji menn ástunda einhverskonar bókmenntalegan rétttrúnað er upplagt fyrir þá að gera slíkt í friði á viðeigandi þráðum.
Ég legg til að Jóakim og Gimlé muni syngja saman stílfærða útgáfu af Dancing Queen með Abba á næstu árshátíð. Lagið myndi að sjálfsögðu heita Drama Queen.
Svo fara allir í leðjuslag og fá sér pönnukökur með rjóma á eftir.
Hvað gerðist eiginlega?
Er það rétt skilið hjá mér að gagnrýni Gimlé á skrifum GEH hafi farið svona fyrir brjóstið á Jóakim að allsherjar ritdeilur og svívirðingar brustu fram þannig að það endaði með að Jóakim hætti?
Eru ekki mikilvægari málefni á dagskrá í heiminum en svona tittlingaskítur?
Veir ekki, skabbi. Gamli góði tilfinningaklúbburinn óð af stað en svo virðist sem langstærstur hluti þeirra sem hafa komið að blaðra um málið hafi ekki hugmynd um það! Þetta gengur yfir.