Í morgun vöknuðu landsmenn við þær fréttir að á Akureyri væri alhvít jörð á meðan marautt var hér fyrir sunnan og ellefu gráður á selsíusi.
Í gærkveldi var víst svo mikið vesen fyrir norðan að fólk komst ekki leiðar sinnar með góðu móti. Snjór, hálka og annað vesen. Við hér sunnan heiða vorum í góðu yfirlæti að glápa á sjónvarp og ekki í neinu veseni. Mér finnst þessum gæðum afskaplega misskipt og verð ég að segja að okkur hér fyrir sunnan er mikið mismunað í þessum efnum. Þetta verður að lagast, ég vil snjó og vesen!
Ég óska eftir því að Hakuchi lagfæri veðurjöfnunarmódúluna á veðurvélinni og að hann geri okkur mögulegt að fá sömu veður og aðrir fá!
ef það væri ófært í október þá er það fyrirboði þess að veturinn verði skemmtilega ófær.
Við viljum ófærð! Við viljum ófærð!
Þá get ég ekið á fólksbílnum sem yrði á venjulegum snjódekkjum framhjá öllum beyglunum sem pota nagladekkjum undir hjá sér og spóla um eins og þeir eigi lífið að leysa, lullað í rólegheitum framhjá jeppafólki sem hitti ofjarl sinn í litlum skafrenningi sem safnaðist við götuhornið. Smellt í lægri gír í brekkunni heima og farið rennslétt skautasvellið þar án þess að pompa á kantinum. Húrra fyrir snjó og hálku.
Sjálfur er ég ekki aðdáandi skrifa Ívars og hef takmarkaðan áhuga á heimilisbloggi hans. Mér er slétt sama hvort menn skeini sig í stórhríð fyrir norðan eða með sjónvarpstækinu á því heimilinu. Þannig er hann nú bara þessi heimur.
Ég vil 11 stiga hita og snjó en er jafnframt fullkomlega ósammála sjálfum mér um að það sé það sem ég vilji.
Því miður... ég er búinn að steypa fast akkeri norðan við heimskautsbaug og það er spil á því sem dregur...
Nei... það var bara akkerið sem var steypt. Eigum við ekki að steypa okkur í áfengisneyslu?
þið megið fá allan þann snjó héðan sem þið getið í ykkur látið og hafa eins lengi og mér sýnist.
En svona VILJA Íslendingar hafa þetta. Misskipt gæði í veðurfari, eða þangað til að virkjanir verða lagðar af og orka alheimsins verður notuð í staðinn. Við þurfum að fara að framleiða meiri orku en þá sem við eyðum.