Að koma undir sig fótunum í íslensku samfélagi er erfitt. Að verða gamall í íslensku samfélagi er erfitt. Að lifa mannsæmandi lífi í íslensku samfélagi er nánast ógerlegt.
Það hefur verið æ erfiðara undangengin ár fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum, festa sér húsnæði og hefja búskap. Til þess að eignast húsaskjól þarf að sökkva sér í botnlausar skuldir og veðsetja hálfa ættina.
Það er ekki lengra en síðan 1998 sem ég keypti mér mína fyrstu íbúð og á þeim 8 árum sem liðin eru hefur íbúðin mín hækkað um ríflega 100% að verðgildi. Laun hafa hins vegar ekki hækkað að sama skapi.
Ef ungt par ætlar að fjárfesta í íbúð þá þarf það að finna sér um það bil 15 - 20 milljónir. Þessir peningar liggja ekkert á lausu og þegar árslaun pars eru á bilinu 3 - 6 milljónir þá er ekkert gefið að lán fáist fyrir íbúðarkaupum. Þá þarf að leigja sér og eins og þróunin hefur verið þá kostar meira að leigja heldur en afborganir af íbúðarlánum. Og til lengri tíma litið þá eru leigupeningar náttúrulega ekkert annað en blóðpeningar!
Það er vissulega fátt til ráða nema að unga fólkið vinni myrkranna á milli og slíti sér út fyrir aldur fram. Þetta er röng þróun! Ef unga fólkið á barn þá er hægt að gefa sér það að annar aðilinn nái litlu sem engu sambandi við barnið sitt vegna þess að verið sé að vinna af hörku til að geta keypt húsnæði.
Þegar parið er komið með börn þá taka við gjöld fyrir leikskóla, grunnskólavistun að loknum skólatíma, framhaldsskóla og svo framvegis. Þetta er alls ekki ókeypis og eiginlega langt frá því! Hvenær og hvernig á þá unga fólkið að koma sér upp húsnæði?
Þegar fólk svo verður aldrað þá tekur baráttan aftur við. Ef fólk hefur verið ólánsamt og ávallt verið í láglaunastörfum þá er úr minnu en engu að moða þegar lífeyririnn fer að koma. Þeir peningar sem fólk hefur lagt í lífeyrissjóði og alls kyns sparnað var skattlagt í upphafi og afgangur lagður inn. Svo þegar þetta er greitt til baka þá mætir skattmann með síuna sína, rennir upphæðinni aftur í gegn og eftir stendur tvísköttuð upphæð.
Það er ömurlegt hvað gamalmenni þurfa að greiða fyrir lyf. Oftar en ekki eru lífeyrisgreiðslurnar svo lágar að þær hrökkva vart fyrir lyfjakostnaði og svo á eftir að lifa út mánuðinn. Og svo eru menn hissa á því að gamalt fólk á Íslandi sé þunglynt og finnist látið heima hjá sér eftir tvær vikur.
Þessi kjör vil ég jafna. Ég vil gefa ungu fólki möguleika á því að koma undir sig fótunum með húsnæðiskaupum og að lifa af. Leikskóla vil ég gera að fyrsta skólastiginu og skólaskylda þar af leiðandi frá þriggja ára aldri. Ég vil að aldraðir hafi jafn mikinn möguleika á því að lifa og við sem yngri eru.
Einhver kann að spyrja hvernig ég ætli að fara að því. Jú, það þarf að breyta lánakerfinu hér á landi. Það þarf að auka sveigjanleikann til að fólk sé ekki komið á vonarvöl þremur árum eftir íbúðakaup. Ég vil að leikskólagjöld verði felld niður í kjölfar þess að leikskóli verði gerður að fyrsta skólastiginu. Ég vil að skólavistun eftir venjubundinn skóatíma verði einnig gjaldfrjáls vegna þess að það hafa ekki allir foreldrar efni á því að borga slíka peninga og ekki er öllum börnum treystandi fyrir því að vera ein heima.
Hvað eldri borgara varðar þá vil ég afnema alla skattlagningu sem lýtur beint að þeim nema ef vera skyldi fasteignaskattur. Skattur á lífeyri er glæpur hvort sem er inn eða út. Ég vil að aldraðir fái sjálfkrafa afslátt af lyfjum þegar þeir hætta að vinna.
Nú er ég búinn að pústa svolítið um pólitík... en það á örugglega eftir að heyrast meira frá mér um þá skepnu á næstunni.
Jamm, þú ert á grænni grein! Íbúðin tvöfaldast í verði á nokkrum árum. Þú getur lifað af vöxtunum! Eða keypt eina í viðbót fyrir peningin og leigt hana út. Bjartsýni borgar sig, það er margsannað.
Það er málið nefnilega ekki. Ég keypti íbúð en nú þarf ég að fara að stækka við mig og það er nánast ógerlegt því sú íbúð sem ég þarf er of dýr fyrir mig.
Ég er með lausn, en ef þú ert háður því að vera á stór-Hafnafjarðarsvæðinu þá er hún ekki fyrir þig...
Þú getur selt íbúðina þína, borgað upp skuldir, stækkað við þig og átt pening aflögu ef þú flytur á einhvern útkjálka...
Ég gæti keypt mér 3 hæða einbýli á Höfn fyrir 3 milljónir... En mig langar akkúrat núna ekkert að flytja þangað.
Gleymdi að taka fram að þetta var Blóðbankinn - ég er með partí í kvöld.
Alveg er ótrúlegt að horfa upp á systemið á blessuðum klakanum, alveg ótrúleg vitleisa með bæði íbúðarverð svo og verðtryggingu lána. Hver í ósköpunum er svo vitlaus að sætta sig við að borga 27-28 millur fyrir íbúð sem er á svona 12mil að brunabótamati að sjálfsögðu á 100% láni með verðtryggingu svo að raunvextir skella í svona nett 12-15% á ári.
Össs...
Mér er alveg sama, svo framarlega að ég missi ekki eyri úr peningatanknum. Ég skil reyndar ekki af hverju barnlaust fólk á að vera að borga undir þessa gríslinga. Hoho.