Nú hygg ég á landvinninga til að geta aflað þekkingar og vopna til handa hinu Baggalútíska heimsveldi.
Á morgun held ég í svaðilför eina all mikla til Skrímslaborgar (Monster eða Münster eins og heima menn kalla það víst). Þar er áætlað að stunda njósnir vegna aukinnar framleiðslu í vopnaverksmiðjunni. Ég hef nú þegar orðið mér úti um leiðsögumann sem hyggst þiggja greiðslur úr sjóðum spillingaráðuneytis Baggalútíu við það að benda mér á hernaðarlega mikilvæga staði. Slóð mín áleiðis til skrímslaborga verður vandlega falin með því að fara í gegnum Stansted á Bretlandseyjum og fljúga þaðan með vél frá óvinunum til borgarinnar. Þegar þangað verður komið mun ég reyna eftir besta megni að skrifa pistil til að láta vita af ferðum mínum og til að gefa skýrslu um hvað ég hefi fundið. Komi ég aldrei aftur þá getið þið bókað að mér hefur verið drekkt í súrkálskeri af ófrýnilegum mönnum með yfirvaraskegg, sítt að aftan og í snjóþvegnum gallabuxum. Óskið mér góðs gengis því þessi fór verður aldeilis ekki hættulaus!
Góða ferð. Þú hefur væntanlega safnað yfirvaraskeggi og sítt að aftan til að falla í kramið?
Krókur: Ég hef safnað kleinuhring um kjaptinn og handföngin í hann eru að vaxa smám saman. Það verður dulargerfi mitt næstu daga.
Offari: Nei, drekabana gerist ekki þörf í þessari hættuför. Ég held að miklufrekar þyrfti ég timburmannabana, trésmíði ku vera almenn á þessum slóðum.
Ugla: Ég er nú ekki dauður enn... En hún verður heima með Prímadonnu og Dívu á meðan.
GEH: Þakka þér, ekki veitir af... hver og hvar sem hann nú er þessi guð... Hvern þeirra ertu annars að meina?