Mig rak í rogastans um daginn þegar ég fór og keypti mér kaffi...
Ég átti leið fram hjá Súfistanum í Hafnarfirði og fann kaffiþörfina berja mig sundur og saman. Mig langaði í kaffi! Það sem meira var, ég ákvað að kaupa mér stóran poka af einhverju góðu og kjarnríku kaffi. Ég á kaffikvörn heima þannig að ég kaupi sjaldnast annað en baunir. Ég þramma að afgreiðsluborðinu og hugsa mig um og bið svo um stóran poka af Espresso kaffi. Afgreiðsludaman verður sorrý á svipinn og segir að það sé því miður búið en hún eigi Riddara Sívertsen sem sé ekkert ósvipað. Minnugur þess að ég og Heiðglyrnir hinn hugdjarfi riddari reyktum friðarpípu fyrir allnokkru síðan þá gat ég ekki annað en glott í kampinn. Þarna voru saman komnir í einum poka riddarinn og röflarinn. Merkilegur andskoti. Svo þegar ég hafði greitt fyrir kaffið og kominn út þá fór ég að velta fyrir mér hvort maður mætti eiga von á enn fleiri kunnuglegum tegundum af kaffi í Súfistanum... Fuckov Hakuci blanda, Skabba og Limbra blanda... hvað veit maður. En kaffið er mjög gott!
Stórmerkilegt. Ég legg til að þetta verði gert að hinu opinbera Baggalútskaffi hið snarasta.
Aha!
Eru þið Heiðglyrnir í markaðsátaki saman?
Ef... velhepnuð og flott afurð hjá ykkur!
Oss líst afar vel á öll þau vörumerkjanöfn er nefnd eru í fjelagsriti þessu [Ljómar upp].
Hér í Berklabæ og nágrenni fæst teblanda sem heitir Numi. Það er allt hægt.
Nei sko okkur Ívar, flottir strákarnir..hahahahaha..Skemmtileg uppákoma..!..
Eigi er það bara Númi af ritstjórninni er á aðdáendur. Vjer tókum allt í einu eftir að það stendur Enter neðarlega til hægri á nær öllum lyklaborðum á vinnustað vorum. Það á þó einungis við um borðtölvur; fartölvuframleiðendur virðast eigi halda eins mikið upp á þá Baggalútsmenn (Enter sjer í lagi) [Setur fartölvuframleiðendur fyrir hönd ritstjórnar á listann yfir óvini ríkisins].
Hér ætlaði ég að setja inn brandara um kumpána á borð við insert, delete, esc, shift og caps lock en áttaði mig á því að það hefði náttúrulega ekkert skemmtanagildi og þar af leiðandi hreint ekkert fyndið.
Riddari Sívertsen er ákaflega gott kaffi - en heitir víst í höfuðið á Bjarna riddara Sívertsen sem bjó í Hafnarfirði um 1800 - en ekki ykkur!