Ég sá mynd í gærkveldi í fyrsta sinn. Mikið hefur verið látið með þessa mynd og margir vitnað í hana. En hvað er með þessar lofræður sí og æ?
Helvítið hann Steingrímur frá Kúbrókarstöðum hefur sett saman fullt af bíómyndum. Í gærkveldi horfði ég á myndina Skinið eftir sögu Stefáns Konungs. Þar fara með aðalhlutverk Jónas Nikulásarson, Sigurlaug Danivals og Danni Lóns.
Í stuttu máli fjallar myndin um hjón með lítinn strák. Hann barnaskólakennari en hún er sett fram sem auðnuleysingi með krónískan áhuga á draugasögum og hryllingsmyndum. Sá litli er stórbilaður því hann talar við vísifingurinn sinn og segir það vera einhvern félaga sem hann tyggur. Þeim býðst að taka að sér að líta eftir stóru lúxushóteli í Bláfjöllum, þangað sem er ófært frá því að vetur skellur á og þar til vorar, eða í um 5 mánuði. Eins og Steingríms er von og vísa þá klikkast kallinn og reynir að koma kerlingu og krakka fyrir kattarnef. Ofskynjanir stráxa eru ríkur hluti myndarinnar sem og undarlegur kokkur sem virðist skynja allt sem sá stutti skynjar. Ekkert nema fáránlegt!
Það er tvennt sem vegur upp þessa vitleysu. Annars vegar geðveikislegur leikur Jónasar og stórleikur Danna litla sem lék í einni mynd eftir þetta en hefur svo látið það alveg eiga sig. Strákurinn verður reyndar 33 ára á þessu ári.
Sundurlaus og frekar leiðinleg mynd með fullt af tilgangslausum frösum og asnalegum atriðum.
Mér er alveg sama hvað aðrir segja. Mér leiddist að horfa á hana. Steingrímur hefur gert fullt af skrýtnum myndum. En ég verð að segja að þessi er sú allra leiðinlegasta sem ég hef séð af hans myndum.
Ef valið stendur um að horfa á The Shining eða kellingavælumynd /detta-á-rassinn-prumpu-gamanmynd þá mæli ég með að Shining sé sleppt.
Basta!
Fór á þessa mynd þegar hún var sýnd í bíó og þótti hún þá þrælmögnuð. Ægilegt að heyra hvað árin hafa farið illa með þetta verk.
Þessi umræða er á plani sem hæfir ekki Baggalút. Þessi mynd er besta hryllingsmynd allra tíma, það er ekkert flóknara en það.
Magnús minn, þú ert greinilega ekki á réttu plani. Leggðu bílnum þínum á öðru plani og þá veistu hvað hæfir Baggalúti. Smekkur manna er misjafn og þinn smekkur er ekki sá sami og minn.
Hún er betri í minninguni. Maður hefði aldrei átt að asnast til að horfa á hana aftur.
Ég sá hana fyrir u.þ.b. 8 árum síðan, horfði þá á upprunalegu útgáfuna og svo endurgerðina (í tvem hlutum) sama kvöldið.
Mér fannst þetta hin besta skemmtun og var virkilega spennt.
Síðari útgáfan fannst mér betri.
Þú afsakar Ívar.. en ég ætla að vera þér ósammála þó ég lesi ekki félagsritið til enda... ein besta mynd sem ég hef séð...
Það var nú spennandi þegar strákurinn var að hjóla á þríhjólinu á göngunum. Ef maður er að fara í bíó til að sjá umtalaða hryllingsmynd þar sem lítill strákur er að hjóla á þríhjóli þá hlýtur eitthvað hikarlega spennandi vera í vændum...eða hvað?
hann er ekki geðveikur og talar ekki við vísifingurinn á sér og þú veist það vel. Hann er skyggn og það er einn stærsti og mikilvægasti hluti myndarinnar.
Jeg hef nú sjeð endurútgáfuna og verð að segja að hún sé vel gerð líka. Ekki nema furða að raunsæissinnar séu ennþá illa liðnir eftir allan þennan tíma , þar eð myndir á borð við Shining og 2001 eftir Stanley Kubrick þykja meðal mestu meistaraverka kvikmyndasögunnar.
En ef þjer líkar það ekki má jeg þá henda yður á Skyline???