Eins og flestum er kunnugt halda þeir sem einhvern snefil hafa af annað hvort kristinni trú eða markaðshyggju heilög jól innan skamms. Hvað er í gangi?
Ég hef látið mér nægja að kaupa lítilræði handa börnunum og konunni, smáræði handa foreldrum mínum og tengdaforeldrum, agnarögn handa ömmum og öfum og svo mætti lengi telja. Ég reyni að taka til ásamt fjölskyldu minni, þrífa íbúðina og hafa sómasamlegt um jólin.
Hvað er að fólki sem þarf fyrir hver jól að ráðast í það að skipta út eldhúsinnréttingu eða hreinsa út baðinnréttinguna eða endurmublera stofuna? Af hverju þarf þetta að vera árviss viðburður fyrir jólin? Af hverju má ekki gera þetta í miðjum september eða í júlíbyrjun?
Nýtt sófasett, flísaleggja bílskúrinn, marmaraklæða girðinguna... Nei, mér finnst tilgangur jólanna kominn langt norður fyrir öll velsæmismörk. Fólk er að teygja sig suður til andskotans með eyðsluna og situr svo í skuldasúpu í febrúar sem það sér ekki fram úr. Þá hefði kannski verið sniðugra að bíða með flatskjáinn, þráðlausa heilmyndafrumuhraðaverpilinn og gullsófann.
Meining jóla fyrir mér er ekki trúarleg, enda trúlaus með öllu á skurðgoð og ímyndaða vini. Ég trúi á það góða sem býr innra með okkur öllum, ég trúi á mátt mannsins til að bjarga sér sjálfur, ég trúi að saman getum við gert okkur lífið bærilegt. Því er ég að fagna á jólunum. Ég fagna með því að hitta ættingja og vini og borða góðan mat. Ég reyni að sækja hamingju í það sem ég á og þau sem ég á. Ég þarf ekki að sitja í gullsófa fyrir framan flatskjá og horfa á myndir af fólkinu mínu. Ég á mér líka líf í febrúar og get leyft mér eitt og annað þess vegna. Ég verð einn af örfáum sem telja sig hafa efni á því að bruðla í febrúar og fara einu sinni í bíó.
Lítum í eigin barm eftir því hvað veitir okkur hamingju, ekki veskið.
Sérdeilis prýðilegur pistlingur hjá þér. Æ, hvað er það við marga Íslendinga sem telja sig ekki sátta né menn á meðal manna nema að snúa húsinu á hvolf fyrir jól.
Svo loks þegar blessuð jólin ganga í garð eru allir svo örþreyttir og pirraðir að jólagleðin verður lítið annað en tilgerðarlegt bros því, eins og þú bentir á, þá situr landinn í skuldafeni upp fyrir haus og gott betur.
Viðurkenni það á mig að ég fór heldur framúr góðu hófi hvað varðar verðlag á jólagjöfum til systkina og góða ættingja... telur maður sig kannski ómeðvitað... hvernig á ég að segja þetta. Reyna að bæta sig í augum þess er gjöfina þiggur?
En svo er það kannski annað, vandaðir munir kosta sitt. Fór á flakk í Kringlunni (sá hryllingur) um daginn í jólagjafainnkaupaleiðangur og leit við í nokkrum búðum. Þeir munir sem ég sá og taldi vert að gefa einhverjum nákomnum kostuðu aldrei undir 5000 kr. Annað var bara bölvað pjátur og drasl!
Eru launin okkar orðin það há að 5000 krónur eru orðnar titlingaskítur?
Æ ég veit það ekki... [Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann]
Er það með heilmyndafrumuhraðaverplinum sem þér teks að afrita hugsanir mínar og gjörðir?
Þetta rit er fín jólagjöf. GLÐILEG JÓL.
Ég gæti ekki verið meira sammála þér Ívar. Megir þú og fjölskylda eiga góða hátíð með góða samvisku og feit veski eftir á.
Jólin eru til að bæta þá deyfð sem við flest lendum í á þessum árstíma. Þá er gott að taka til og gera eitthvað skemmtilegt fyrir hús sitt. Bruðlið er hinsvegar óþarft ef, farið er yfir mörkin, sumir eiga þó sjóð sem þeir hafa safnað, til að geta bruðlað fyrir Jólin. Takk fyrir og Gleðileg Jól.
Jólin er ágætis endapunktur framkvæmda. Ef hlutirnir eiga ekki að vera klárir um jólin hvenær þá?
Sorrý, en mér finnst þetta bara röfl.
En gleðileg jól samt
Ég er alveg sammála þessu, jólin eru tími sem maður á að eiða með fjölskyldunni. Maður á ekki að vera að eiða morð fjár í flottar og dýrar jólagjafir sem eru í tísku akkúrat núna. Frekar að kaupa eitthvað sem kemur frá hjartanu.
Ég tilbið Mammon og get aldrei eytt nóg um jólin.
En án gríns, þá verð ég að taka undir meðykkur flestum. Þetta er að verða full svæsið. Get ég kanski bara fengið frið á jörðu í jólagjöf þetta árið?
Mér var nú kennt að jólin væri til að fagna Jesús en ekki fæðingu hans þar sem þetta var eina eitthvað 6 kl. tíma kjaftæði!
Á þorláksmessu fer ég í fylgd konu og barns
í kringluna, stend fyrir utan tékkkristal og við
hristum höfuðin full vandlætingar þegar fólkið
kemur út með glingrið sitt.
[Fær sýn af þrem kinkakolli Tröllum fyrir utan Tékkkristal að hrista hausinn] Nú verð ég að fara að sjá mynd af þér fagri, þú ert ekki ættaður frá Noregi er það? En hafið þið annars tekið eftir því að það er enginn svartur kristall í TéKKKristal? Hmmm.
Sammála! Enda tek ég svo sannarlega ekki þátt í þessu stressi og mun aldrei gera.
Fagri: Býrðu í Islandica (áður rammagerðin)? Þar hef ég séð fullt af svona kinkakollitröllum eins og Guðmundur bendir á. Og í framhaldinu datt Hexiu í hug gamalt og gott lag sem sungið var í Útvegsbankaauglýsingu hér um árið:
Hver er Trölli, hver er Trína,
hver er Hippó flóðhestur?
En öll við þekkjum Jóakim, æ það er satt,
hann er sá eini af okkur sem á hatt.
(og líklega sá eini af þeim sem á lögheimili á Gestapó)
Ég er einnig hundheiðinn og lít ekki á jólin sem trúarhátíð, en finnst þau engu að síður merkileg og falleg. Eyðslurugl er þó aldrei fallegt, en sem betur fer þekki ég afar fáa sem stunda slíkt. Ég held að flestir Gestapóar séu ekki í þessum 'pakka' (ATH: viljandi orðaleikur) heldur; við erum allt of skynsamt fólk til þess.
Að þessu sögðu verð ég að tilkynna að þetta árið gef ég fleiri jólagjafir en nokkru sinni áður. Á móti kemur hins vegar að ég eyði mjög litlu í sjálfan mig eins og venjulega, enda reyni ég að kaupa aldrei það sem ég hef ekki efni á.
Já, og gleðileg jól!
Sammála þér Ívar. Maður er manns gaman. Kannski er jólabruðlið aðferð hjá sumum til að friða samviskuna eitt augnablik.