Ég hef dregist inn í pólitík undanfarin ár og þetta árið kom að því að ég bauð mig fram í prófkjöri. Ég hef sagt fólki frá því og viðbrögðin hafa orðið æði misjöfn.
Ég hitti eldri konu sem ég þekki um daginn á förnum vegi og sagði henni í óspurðum fréttum að ég hefði ákveðið að bjóða mig fram í prófkjöri flokksins míns í mínum heimabæ. Hún spurði mig hvort það væri ekki dýrt og hvar ég ætlaði að hafa kosningaskrifstofu. Ég sagði henni að ákveðið hefði verið að kynning myndi eingöngu fara fram á síðum dag- og héraðsfréttablaða auk prófkjörsblaðs sem borið yrði í öll hús í sveitarfélaginu. Hún fussaði og sveiaði yfir því. Mig grunar að hún hafi séð þar nokkra kaffibolla fljúga frá sér.
Ég hitti mann á mínum aldri og sagði honum frá þessu. Hann spurði mig hver mín stefnumál væru og ég sagði honum það með miklu stolti. Þegar þeim lestri lauk bað hann mig endilega að koma á framfæri nokkrum málefnum sem honum finnst vanta í sveitarfélaginu. Ég sagði að ég myndi nefna þetta við samherja mína. Ég spurði hvort hann væri þá í mínum flokki en hann neitaði því og sagðist vera hinum megin eins og það er kallað. Ég spurði þá af hverju hann nefndi þetta ekki við samherja sína og hann sagði þá að hann hefði gert það en það væri gott að hafa áhrif í báðum flokkum.
Síðasti aðilinn sem ég segi hér frá fylgist hreint ekkert með pólitík og ereiginlega maður sem mætti kalla „Herra Utan Við Sig“. Ég sagði honum tíðindin og viðbrögðin stóðu ekki á sér:
- Ætlarðu að verða bæjarstjóri?
- Hittirðu Gíslamartein oft?
- Ætlarðu að verða ráðherra seinna?
Þessi einstaklingur er reyndar líka svolítið þroskaheftur þannig að honum er fyrirgefið að fylgjast ekki vel með pólitík.
En hvað er með allt þetta vesen í kringum prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík? Allir og ömmur þeirra með kosningaskrifstofur. Eitthvað hlýtur þetta að kosta þá og ekki trúi ég því að Villi Þ. VIll og Gíslimarteinn eigi þessa peninga. Þessir menn munnhöggvast hvað eftir annað í fjölmiðlum og hafa lagst svo lágt að lofa fleiri blómakerjum á götur Reykjavíkur. Ef ég ætti heima í Reykjavík þá myndi ég snarlega flytja þaðan ef svona sandkassabörn ætla sér að fara að stjórna þar. Þar sem ég bý og er í framboði er ekki um að ræða blómaker heldur velferð fjölskyldunnar og ásýnd sveitarfélagsins. Það er ekki verið að detta ofan í blómaker og sandkassaleik... alla vega ekki ennþá... glottir eins og fífl
Mér sýnist þessi þroskahefti vera með mun betri sans fyrir pólitík en þig grunar. Þetta eru beinskeyttar og góðar spurningar sem eru lausar við allt hjóm.
Mikið eigum við þetta út á landi lið gott þar eru menn metnir eftir eiginn verkum. Meðan Gilli og Villi eru keyptir af þeim er stjórna borginni.
Þetta auglýsinga bruðl ætti að banna þá kæmust þeir óbundnir öðrum í þetta framboð.
Gangi þér vel í þessu. Spurningin er hvort þjóðinn hafi nú tapað sínum flínkasta strætóstjóra
og sé að fá klaufalegan bæjarstjóra eða er það kanski öfugt?
hmm... nei GEH, Ég lenti í neðsta sæti sem er ekkert óeðlilegt. Ég uppskar sem ég sáði, ég komst ekki á framboðsfundinn sem haldinn var og ég skrifaði ekkert í blöðin. Ég var bara að stimpla mig inn. En ég fékk samt 57 atkvæði. Það er mér mikill sigur. Ég átti aðeins von á 2 atkvæðum.
[Kemur inn með fullt fangið af höttum, flautum og blöðrum, sem og nokkrar kampavín.]
57 atkvæði ? það er bara nokkuð gott, ég þekki ekki einusinni svo marga.
Vel af sér vikið Hr.Sívertsen.
takktakk. En vegna prófkjörs í Reykjavík birtist ágætis vísa á vefsvæðinu http://www.malbein.net og er hún svona:
Þó ekki rættust allar spár
ýmsir fylltust kæti
og sumir greiddu fúlgur fjár
fyrir aftursæti.
Ég bókstaflega veinaði þegar ég las þetta.
Til hamingju með árangurinn, Ívar minn.
Hvaða flokkur er þetta annars, sem þú verður svo í framboði fyrir, Bandalag öfgasinnaðra Jafnaðarmanna?
jahh... það má kalla það það... Okkar sól skín skærast þegar hún er rauð. Ekkert grænmeti, landbúnaðardót eða fyrirtækjasöluofstopa fyrir mig takk.