Ég hef sótt um mörg störf um dagana en sit enn í strætósætinu.
Þegar starf er auglýst sem mér líst á þá sæki ég um það og bíð spenntur eftir svari. Ég hugsa um það næstu daga á eftir hvort ég hafi nú nokkuð fengið djobbið en enda svo á því að verða dapur og yfir því að líklega sé búið að ráða í djobbið.
Atvinnurekendur margir hverjir auglýsa eftir starfsfólki og bjóða gull og græna skóga og jafnvel að öllum um sóknum verði svarað. Ég sótti um starf um daginn þar sem einmitt var auglýst á þann máta og ég þóttist nú viss, vegna reynslu minnar og kunnáttu, að ég yrði a.m.k. boðaður í viðtal. Svo leið tíminn og ekkert fréttist. Það liðu 2 vikur, 3 vikur og ég var orðinn leiður yfir að hafa ekki fengið djobbið. Í dag er liðinn rúmur einn og hálfur mánuður og ég ákvað að senda póst á þetta fyrirtæki og spyrja. Svar barst um hæl þar sem mér var þakkað fyrir að sækja um en að annar hefði verið ráðinn í starfið. Það fauk í mig en það er ekkert við þessu að gera.
Ég hef sótt um mýmörg störf í gegnum ráðningarstofurnar en í líklega 10% tilfella fæ ég svar til baka eftir dúk og disk þess efnis að ráðið hafi verið í starfið og mér sé þakkaður áhuginn. Hvers konar vinnubrögð eru það eiginlega? Ég hef aldrei verið kallaður í viðtal eða svo mikið sem beðinn um að senda nánari upplýsingar um mig.
Ég sótti um á einum stað eftir að hafa séð auglýsingu í blaði og viti menn, ég var boðaður í viðtal á grundvelli reynslu minnar og getu. Ég var líka boðaður í framhaldsviðtal á sömu forsendum. Ekki leið á löngu þar til svar kom og mér tilkynnt að hætt hafi verið við að ráða í starfið en þeir myndu hafa samband ef af yrði. Þetta kalla ég heiðarleg vinnubrögð og svona viðbrögð vil ég fá strax við mínum umsóknum. Þetta ferli frá umsókn að svari tók í heildina 3 vikur minnir mig.
Það er ekkert skrýtið að þeir sem eru annað hvort atvinnulausir eða vilja skipta um vinnu séu orðnir þunglyndir og lífsleiðir. Ef þið þekkið atvinnurekendur, eruð sjálf að leita að starfi eða þekkið einhvern sem er að leita að starfi þá skulum við öll taka höndum saman og hvetja atvinnurekendur til að svara umsóknum fjótt og hvetja þá sem eru að sækja um til að óska eftir svari fljótt.
Svona vinnubrögð eru náttúrulega bara óþolandi.
Nauhauts - þetta er ekkert svona! Ég er t.d. alveg viss um að ég er búin að fá starfið sem ég sótti um hérna á haustdögum 1998 - í það minnsta hef ég ekki heyrt annað...
Maður ætti kannski bara að mæta ef maður hefur ekkert heyrt og spyrja: Jæja, hvar er skrifborðið mitt?
Er ekki spurning um að sýna bara metnað og mæta bara á staðinn. Það gerði ég síðast og var ráðinn í þokkabót.
Líklega er rétt að hafa samband við þá mjög fljótlega og spyrja út í málið... það virkar svo áhugalaust að bíða bara... Skál.
Er umsóknin þín vel unnin? Ertu búinn að kynna þér fyrirtækið sem þú ert að fara í viðtal í eða senda inn umsókn? Mörg fyrirtæki eru farin að ráða frekar hegðun en hæfni, leita að réttum aðila í hópinn, gott að kynna sér starfsmannastefnu fyrirtækis. Ágætt að rúlla í gegnum greinar/bækur um starfsmannaval og ráðningar. Ekki bíða eftir viðbrögðum,vertu á undan og sýndu áhuga. Skal gefa þér mína bók. Gangi þér vel.
Eina ráðið er að stofna eigið fyrirtæki. Þar þarftu sko ekki að bíða eftir neinu, en að hefjast strax handa og færa út kvíarnar. SKÁL!
Var sjálfur að skipta um starfsvettfang og skráði mig hjá www.mannafl.is fór í viðtal þar og var bara kokhraustur og heimtaði nógu svívirðilega há laun... það liðu 8 dagar frá því að ég sótti um og þartil ég byrjaði í mjög góðu djobbi.
öppdeita... sækja um flest,, þó það sé asnalegt.. ég gerði það.. þá sjá þau áhuga og setja þig framarlega í bunkann.
Atvinnurekendurnir hræðast spíritismann. Þeir hræðast líka stjórnarskrána og allt lýðræðislegt því að um leið og Ísland verður lýðræðisríki þá lýður vinnumarkaðurinn undir lok og stjórnmálamenn geta ekki lengur keppt um hylli fólksins, því að í raun snúast öll kosningaloforð um að útvega nógu mörgum sem mesta vinnu og sem minnstan pening.
matrixs@mi.is