Mig rak í rogastans í gær þegar ég horfði á spaugstofuna.
Ég sá ekki betur en að þeir væru að nota hugmynd mína sem birtist hér: http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=85&n=3132
Væri ekki ráð að borga manni fyrir svona?
Nú ferðu í hart Ívar og enga linkind. Ég sá þennan þátt og var viss um að ég kannaðist eitthvað við þetta. Áttaði mig ekki á því fyrr en þú bentir á það. Allir lögræðingar Undirheima eru á þínu bandi
[nær í málband, klæðir sig í grafarabúning úr lukkulákabókunum, mælir Heiðglyrni, smíðar kistu, pakkar honum í kistuna og sendir hana með næsta póstvagni] Fyrst hann dó úr hlátri verður hann að fá viðeigandi útför... [flissar eins og smástelpa]
Þetta er svívirðilegur þjófnaður hjá þeim Spaugstofumönnum. Ég skil ekki hvernig þeir ætla sér að komast upp með þetta. Lögsóttu bastarðana!
Þú verður að láta okkur vita hvernig svarið við fyrirspurninni verður. Hvort þeir viðurkenni brot sitt.
Lifnar við í miðju atriði, sem stolið hefur verið úr Lukku Láka bók... hahaahahahahahahhhhahaahahahaha deyr aftur úr hlátri..!..
Þarf maður þá virkilega að fara að HORFA á spaugstofuna? Þeir hafa ekki verið fyndnir í mörg ár.
Hef á milli handa E-mail sem fór á milli Jónínu Ben. og Sigga Sigurjóns sem sannar afdráttarlaust að maðkur sé í mysunni.
Skabbi ef þú setur á rúv á netinu getur þú séð nemda spaugstofu nokkrar vikur í viðbót
Má ekki bæta við?
Davíð er búinn að segja af sér sem ráðherra. - Heppinn!
Vinalega fyrirspurnin var bara á þá leið hvort þeir hefðu nokkuð fengið þetta að láni. Og svar barst um hæl:
með fullri virðingu fyrir þér og þínum skrifum, þá höfðum við ekki lesið þetta. en það er svosem sama hvaðan góðar hugmyndir koma, en þarna virðumst við hafa fengið sömu hugmyndina án þess að vita hver af öðrum. ekki er ótrúlegt að fleiri hafi fengið þessa hugmynd líka því hún virðist liggja svo beint við.
með kveðju
Pálmi Gestsson
-
Ég ákvað að láta þar við sitja því maður veit aldrei hvað fer í blöðin nú til dags af samskiptum manna í formi tölvupósts.
Fyrirgefðu Ívar, en fékkst þú ekki þessa hugmynd 'að láni' úr sjónvarpsauglýsingu frá Umferðarstofu? Eitthvað rámar mig í auglýsingu þar sem barnungur ökuníðingur var kallaður heppinn hvað eftir annað.
Jú vissulega. En ádeilan er sú sama og mér fannst svolítið bogið við það að þetta skyldi koma fram núna, hálfum mánuði eftir að ég skrifa mitt innlegg.
Þetta er allt þjófstolið, enda eru þessir menn farisear og tollheimtumenn,... fussssss