Sumir hlutir eru mér færari en öðrum
Sælar elsku dúllurnar mínar. Ég komst að því að ég gæti laumupúkast svolítið áður en þið hin gætuð svo mikið sem séð eitthvað hér á Gestapó. Ég naut aðstoðar Nornarinnar sem virðist vera sívaxandi nörd. Alla vega þá verður þetta stutt í þetta sinn og vonast ég til að geta verið jafn virkur og áður... eða eitthvað... LIFI SANNLEIKURINN, LIFI GESTAPÓ, LIFI BAGGALÚTUR, HREIN TRÚ, FLÖT JÖRÐ, SLÉTT FÖT, SKÁL!
"Ívar Sívertsen
• Félagsrit: 101 • Innlegg: 10000 • Skráning: 11/08/03 - 12:21"
10.000 innlegg og 101 félagsrit á tæpum 2 árum minn kæri Ívar, ég tek hattinn ofan fyrir þér á þessum merka áfanga.
Ó blessað bauvið, hve ég hef saknað þín. Loksins kemst aftur á jafnvægi í alheiminum.
Vei! (Ég er greinilega ekki einn um að hafa kíkt í Ljósaskiptin!) [Ljómar upp!]
Nei en samt hefur að áliti voru verið heldur dauflegt þar undanfarið. Erum vjer því að íhuga að stofna brátt nýjan og sjerlega laumulegan laumupúkaþráð [Ljómar laumupúkalega upp].
Það kemur ei ótvírætt fram og verður Ívar að svara því hvað hjer var á ferðinni en þá án þess að vita af hinum (til að minnka líkur á hugverkaþjófnaði).
Því hefur svo sem aldrei verið svarað hvort þetta sé í raun laumupúkaþráður. En kvitta samt til öryggis.
[Kvittar fyrir komuna]
En Vlad sagði að Ívar yrði að svara því svo þú verður bara að skipta um skoðun eing og þú gerir svo vel.
Hver haldið þið að eigi afmæli í dag!
Það sést á öðrum og meiri laumuþræði. [Ljómar upp]