Nú er búið að sparka okkur úr júróvisjón þetta árið. Hvað klikkaði?
Nú hefst vafalaust mikil umræða um það hvað hafi klikkað hjá Selmu og stelpunum í Kænugarði. Ég veit hvað klikkaði. Það voru hinir! Allar hinar þjóðirnar voru hreinlega ekki að fíla það sem við höfðum fram að færa. Selma gerði sitt vel, stelpurnar með henni líka sem og allir þeir sem að atriðinu stóðu. Ég er reyndar sammála því að Noregur hafi átt að fara áfram og ég vona svo sannarlega að þeir taki þessa keppni og rassskelli hana! Fyrir þá sem ekkert fylgjast með júgravisnun þá eru þeir með níunda áratugs glamúr þungarokk. Það er skelfilega mikið að virka og ég held meira að segja að það eigi eftir að verða rosalegt trend núna. Réttir menn á réttum stað á réttum tíma. Gleðibankaheilkennið var gríðarlega áberandi í þetta sinn. Höfðum við ástæðu til þess? Jú, Þorvaldur Bjarni samdi All out of luck og Selma söng það, þetta átti að virka aftur. En Evrópa heldur áfram að þróast og tónlistarsmekkurinn að breytast. If I had your love var einfaldlega of mikið í sama stíl og All out of luck. Það var greinilega að virka að vera með eitthvað metal eða fullt af drasli á sviðinu til að lemja í. Ég held að á næsta ári verði að vera undankeppni. Það skapar stemmningu í samfélagið og svo fá lítt þekktir lagahöfundar smá möguleika á því að sýna sig. Svo legg ég til að ég fari næst í Júróvisjón fyrir Ísland og syngi eitthvað skrýtið! Þá kannski vinnum við!
Þú varðst að draga upp Noreg og MOLDavíu, var það ekki? Kattaróbermið þitt, það væri réttast að geyma þig fyrir framan arininn hjá mér!
Ég er ekki viss um hvort þetta hafi verið hótun eða þú viljir hreinlega leyfa mér að njóta hitans frá arninum.
Æ, fyrirgrfðu Tigra mín, ég er bara eylítið hörundsár eins og er.
Svindl pakk þessir Evróapar.
Áfram Noregur og Ungverjaland segi ég bara.
Selma var annars hræðileg, hana vantaði kraft og sönggæðin voru alls ekki nógu mikil. Svo var textinn of máttlaus líka, í ár var það "If I had your blablal " en þegar allt gekk að óskum sté hún sterk fram með "Don't sleep on a monday, don't.. eitthvað *æi man ekkert af þessum texta*" . Gýfurlegt magn aukaorða gerði textann í ár máttlausan (finnst mér).
Ég get varla tjáð mig um þetta mál vegna sífelldra hláturskasta. Mikilmennskubrjálæðissmáþjóðin norður í ballarhafi heldur virkilega að þetta handónýta lag hafi átt eitthvað erindi í þessa keppni.
Hverju um að kenna? Það segir sig náttúrulega sjálft ef fólk almennt nennir að hugsa.
Það sem ég skil ekki er hvernig þetta gat gerst. Ölstofa í Bretlandi valdi þetta sem besta lagið! Hvernig dirfist Evrópa að ganga gegn áliti knæpu í Bretlandi?
Það er náttúrulega ofboðslega fyndið að Selma hafi ekki komist áfram eftir allt sem gengið hefur á í sambandi við þetta lag og umræðuna í kring um þetta. Þetta lag hennar er frekar lélegt en það er hreinræktuð snilld miðað við sum lögin sem voru að komast áfram þarna. Ég er búinn að fá mig fullsaddan af Austurblokkinni og hennar hryllilega ömurlega tónlistarsmekk og euro-trash-stæla. Ég legg til að farið verði í stríð við þetta skítapakk sem eyðir heilu árunum í að skera hvort annað á háls en stendur svo saman í Evróvisjón af öllum hlutum.
Góður Magnús. Sammála. Ég var einn af þeim sem hafði spáð Selmu góðu gengi. Lagið fjörugt og svo hefur Selma svo mikla útgeislun. Hefði sennilega átt að vera djarfari á sviðinu, þær voru það allavega margar af þessum stelpum sem kunnu sumar ekki að syngja en voru þeim mun betri í að vera kynþokkafullar. Í þeim hópi sem ég var þegar útsendingin fór fram voru menn að velta því fyrir sér hvaða þjóð yrði fyrst til að senda berbrjósta söngkonu í keppnina.