Vítisvélar djöfulsins! Forðist þær sem mest þið megið!
kvöldið í kvöld hefur verið markað af leiðindum, óheppni og veseni. Ég (sem er byrjaður að keyra leið sem liggur um Kópavoginn) fór á bílnum mínum að höfuðstöðvum fyrirtækisins sem er verktaki hjá Strætó og hugðist ná vagni sem færi þar framhjá. Ég rétt missti af honum og því brunaði ég niður að verslunarmiðstöðinni Firði til að ná vagni sem færi inn í Mjódd. Ég lenti á eftir hægfara bílum og sá í rassgatið á Mjóddarvagninum. Ég fór því í loftköstum inn í Mjódd á bílnum mínum. Mér til mikillar skelfingar sá ég að það var varabíll í staðinn fyrir venjulega bílinn. Nú var farið að sjóða á mér. Ég kláraði vaktina og hugðist fara og taka bensín. Ég fór sjálfsala og skellti kortinu í, skráði pin númer sem ég taldi rétt og upphæð úttektar en apparatið ullaði kortinu á mig aftur. Þetta gerði ég í tvígang. Þá datt mér í hug að fara í Hafnarfjörðinn og skella kortinu í hraðbanka til að taka bara út peninga. Þetta var í Landsbankanum við Fjarðarhraun. Ég stakk kortinu inn, sló inn pin númer og fékk þau skilaboð um að það væri rangt. Ég hugsaði þá að ég hefði aðra tilraun áður en ég gæti tekið það aftur og reynt síðar. Ég sló inn annað pin númer sem ég taldi rétt og þá yggldi hraðbankinn sig og sagði mér að ég væri asni og hann tæki kortið í sína vörslu. Þetta væri svo sem ekkert mál ef við Hexia værum ekki ný búin að leggja inn Visa kortin okkar, hún að skipta um banka og því debetkortslaus að auki. Takk Landsbanki fyrir að eyðileggja helgina endanlega fyrir okkur!
Gefðu mér upp reikningsnúmer. Ég skal færa á þig svona 50.000 eða svo handa þér til að eyða yfir helgina. Engir vextir handa Gestapóum!
Það er meinið... þetta debetkort er að reikningnum mínum og því get ég ekkert tekið út af honum...
Mitt problem er að ég er í KB banka og nú er landsbankinn með kortið mitt!
Opið í Kringluútibúi frá 11-16 og Smáranum 13-16.
Hafðu það og njóttu vel.
Millifærðu í tölvinni hvað upphæð sem þér þettur yfir á reikning Þarfa þá getur hann.
(a farið í hraðbanka og tekið aurinn út og afhent þér.
(b farið með þér hvert sem er og borga úr eiginvasa en með þínum aurum.
(c. slegið Þarfa og Sverfil um fimtíukall hvorn,ef það dugar þér ekki yfir eina helgi þá er skýringin á gleypugangi bankans komin
Ég skil ekki afhverju þetta er kallað "hraðbanki"
a. Þeir eru ekkert svo hraðvirkir.
b. Þeir hreyfast ekkert, og ekki einu sinni hægt.
Legg til að þessir sjálfvirku gjaldkerar (eru svo sem ekkert "sjálfvirkir" gera ekkert nema þeim sé sagt það) verði hér eftir kallaðir sjálfkerar
Ég sé núna að ég hef ekki haft fyrir því að lesa þetta almennilega þegar ég setti inn athugasemd mína. Ég biðst forláts. Er þetta búið að reddast?
Sem betur fer eigum við Ívar eitthvurt skotsilfur hér heima og björgumst væntanlega fram á mánudag. Samt eitthvað svo pirrrrrrandi að eiga fullt af peningum (aldrei þessu vant) en geta ekki notað þá því þeir eru innilokaðri en peningar Jóakims! [Dæsir mæðulega]
Ég segi eins og dordingull.. ef þið eruð með heimabanka getið þið millifært á nánast hvern sem þið viljið, sem getur svo tekið peninginn út í hraðbanka fyrir ykkur.
Ertu sumsé að grenja hér vegna þess að þú gast ekki slegið inn 4 tölur í réttri röð ? ... eða vegna þess að fjögurra talna kerfið er of flókið ?
Við hin getum í það minnsta notað þetta kerfi og það meira að segja án teljandi vankvæða.
Gestapó er engin "Vinalína", það get ég vottað.
Lærðu svo á þessu að hafa á þér seðla.
Peningar eru meira en tölur á reikning !
-
Ég held að Limbri hljóti að hafa verið fullur þegar þetta var ritað.
Eða þá að honum hafi verið rænt og óprúttnir aðilar (s.s. Smábaggi) hafi nýtt sér hans ásjónu.
Alla vegana finnst mér þetta ekki Limbra-legt.
Víst er Gestapó vinalína.
Og ég á líka stundum erfitt með að muna þessi skrattanz leyninúmer... maður þarf að muna svo mikið...
Kennitölur, leyninúmer, símanúmer, reikningsnúmer, pin-númer og aðgangsorð ýmiskonar.
Er nema von að maður ringlist af og til?
Limbri: Þegar maður er með debetkort í mörg ár og allt í einu er skipt um þjónustuleið á reikningnum þá er skipt um kort og nýtt pin-númer er sett á það. Ég er einnig með Visa kort og þar er annað pin-númer. Nú svo er ég með enn eitt pin-númer varðandi leyninúmer í bankanum vegna millifærslna. Síðan er ég með enn einn kóðann sem er að þjófavarnakerfinu í aukavinnunni minni. Allt eru þetta pin-númer sem mér hefur verið úthlutað og ég get ekki breytt. Ég sá í Brussel síðasta sumar að þeir sem eru með debetkort þar geta breytt pin-númerinu sínu í hraðbankanum... EKKI VIÐ! Það er eins og bankakerfið sé eitthvað paranoid.
Allt í lagi, þér er fyrirgefið úr því þú hefur úr svona mörgum númerum að velja. Mér er ekki treyst fyrir nema einu númeri svo þetta er kannski örlítið auðveldara fyrir mig. En það væri reyndar afar gott ef menn gætu breytt sínum númerum. Ég er nefnilega afar hrifinn af vissri fjögurra stafa tölu. (Þið fáið ekki að vita hver hún er)
E.s. fullur var ég ekki, en í einstaklega illu skapi, mætti segja ég hafi verið brjálaður. Vona ég að Ívar hafi ekki tekið þessu neitt illa.
-
Sjálfkerar væri ekki alveg viðeigandi vegna þess að kvikindin eru ekkert sjálfvirk eins og albin nefndi - rafkeri væri kannski skárra? [Glottir eins og Ívar]