— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 4/12/04
Fullur og latur

Ég er fullur og latur og ætti í raun ekki að vera að skrifa fjelaxrit.

Elsku dúllurnar mínar. Þið hafið veitt mér endalausa skemmtun undanfarin guðmávitahvaðmörgár og það er vel. En ég vil líka segja ykkur að ég hef reynt mitt besta til að vera ykkur til skemmtunar og jafnvel fróðleiks. Ekki líta á þetta sem svo að ég sé að hætta, öðeru næer. Ég er bara ölvaður og langaði að skrifa fjelaxrit undir áhrifum. Lifið heil.

   (202 af 287)  
4/12/04 21:00

Skabbi skrumari

Vel af sér vikið Ívar... Skál...

4/12/04 21:00

Ívar Sívertsen

takk takk... skál sjálfur!

4/12/04 21:00

Ísdrottningin

Skál... (ég er samt ekki búin að venjast nýja útlitinu þínu)

4/12/04 21:00

Þarfagreinir

Já, til hamingju. Merkilegt að þú skulir aldrei hafa prófað þetta áður. Skál fyrir sumrinu!

4/12/04 21:00

Ívar Sívertsen

jú, sumarskál!

íSA: mér finnst þetta þægilegra. Nú þekkja mig í raun aðeins þeir sem muna eftir gamla lúkkinu.

Þarfi: Þetta er eitthvað sem ég hef ætlað að gera lengi en loksins lét verða af núna.

SKÁHÁL!

4/12/04 21:00

Tumi Tígur

Til hamingju með þennan áfanga og skál fyrir sumri og sól.

4/12/04 21:00

Frelsishetjan

Ívar þú ert svo frábær penni! [Flissar eins og smástelpa.]

4/12/04 21:00

Galdrameistarinn

Schál Ibbi minn. Ég er sjálfur á nefhjólinu vegna ölvunnar af of miklum Blút og samgleðst þér alla leið til ans... eða þannig. <b>Skál!</b>

4/12/04 21:00

albin

Enginn ætti að vera ófullur, en er ekki varhugavert að skrifa félagsrit latur?

4/12/04 21:01

Smábaggi

Tuh.

4/12/04 21:01

Limbri

Nú er ég nýbúinn að skila af mér risavaxinni skýrslu vegna skólaverkefnis. Ég opnaði að sjálfsögðu öl um leið og vonast ég til þess að verða orðinn temmilegur eftir svona 45 mín. Löng helgi hér í DK, svo ég er kominn í heljarinnar stemmningu.

Kannski mæti ég í kvöld og þvaðra eitthvað eins og Ívar. Það væri sannarlega gaman.

-

4/12/04 21:01

Tina St.Sebastian

[Vælir í gegnum ekkasog] Mihihig lahahangar tihil Dahahahanmeheherkuhur!

4/12/04 21:01

Vímus

Þú ert frábær Ívar minn. Skál! Ég ætla að skrifa félagsrit næst þegar ég verð allsgáður.
Hvenær verður það?

4/12/04 21:01

Ugla

Skál fyrir okkur öllum!

4/12/04 22:00

Jóakim Aðalönd

Skál!

4/12/04 23:01

hundinginn

Og hvað er annars nýtt?

4/12/04 23:01

Ívar Sívertsen

það er ekkert nýtt! Ég er bara sífellt að reyna að koma skikki á tímaleysið hjá mér. Það er erfitt!

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!