Á vefsetrinu www.snilldar.net rakst ég á <a href="http://snilldar.net/spjall/index.php?act=ST&f=6&t=8" target="_blank">skemmtilegan pistil</a> ellegar lista. Málfarið hefur í sumum tilfellum verið lagað en sumt er látið standa þrátt fyrir skelfilega málnotkun
<b>* Það er ómögulegt að sleikja á sér olnbogann.</b>
Ég hef reynt það og trúið mér, það er ekki hægt nema maður sé úrbeinaður eða sé með tungu á lengd við meðal garðslöngu. En það sem ég vil vita er hvað fólk hafi verið að reyna þegar þetta var uppgötvað.
<b> * Krókódíll getur ekki stungið út úr sér tungunni.</b>
Það var líka eins gott! Hafi maður séð tungu í krókódíl þá myndi maður ekki vilja verða vitni að því þegar hann biti í tunguna á sér!
<b>* Hjarta rækju er í höfði hennar.</b>
Að hafa „kadúnk kadúnk kadúnk“ í hausnum á sér sífellt myndi fá mig til að langa upp í næsta net til að klára þetta!
<b> * Þegar þú hnerrar stöðvar hjarta þitt í millisekúndu.</b>
OG þar af leiðir að ef þú notar hnerriduft þá færðu verulegar hjartsláttartruflanir. En hvernig föttuðu menn þetta? Eiga þessir menn ekkert líf?
<b>* Samkvæmt rannsókn sem gerð var á 200.000 strútum á yfir 80 árum hefur enginn séð strút stinga höfði sínu í sandinn né gera tilraun til þess.</b>
Jæja já... þannig að þetta er bara goðsögn? Eða eru þeir svona hrikalega feimnir að þeir vilja ekki viðurkenna það?
<b> * Í Bandaríkjunum er lögð fram ákæra á 30 sekúndna fresti.</b>
Kemur mér ekki á óvart! En nennir einhver að reikna þetta á ársgrundvelli? Ekki ég!
<b>* Það er efnislega ómögulegt fyrir svín að horfa upp í himininn.</b>
Hvað er líka svo sem þar að hafa? Ég horfi þangað sárasjaldan og mér er eiginlega bara nokk sama um það!
<b> * Meira en 50% fólks í heiminum hefur aldrei hringt eða tekið á móti símtali.</b>
Hefur einhverjum dottið í hug að kenna fólki að svara helvítis símanum? Það er kannski þess vegna sem amma svarar aldrei... hún kann það líklega ekki frekar en 50% mannkyns!
* Rottur og hestar geta ekki gubbað.
GOTT! Ég sæi í anda hest með magapest í veðreiðum. Það yrði frekar subbulegt!
<b> * Ef þú hnerrar of harkalega geturðu brotið rifbein. Ef þú reynir að bæla niður hnerra geturðu rifið æð í höfðinu á þér eða háls og dáið. Ef þú heldur augunum á þér opnum með afli geta þau dottið út.</b>
Viltu gera svo vel að fara aftur með þetta hnerriduft! Er ekki nóg að maður fái hjartatruflanir?
<b>* Rottur fjölga sér svo hratt að á 18 mánuðum geta tvær rottur haft yfir milljón erfingja.</b>
Fjörugt ættarmót það... og skemmtilegur fjöldasöngur.
<b> * Að vera með heyrnatól í einungis einn klukkutíma sjöhundruðfaldar bakteríu í eyrunum á þér.</b>
Ég skil, þetta er þá ekki eyrnamergur? Hvernig er hægt að fullyrða svona?
<b>* 40% þess fólks sem koma í partí í húsinu þínu kíkja í lyfjaskápinn þinn.</b>
VÍMUS! Vímus hefur líklega komið í 40% allra partýa!
<b> * Tannlæknir fann upp rafmagnsstólinn.</b>
Kemur ekki á óvart. Píningarþörfin komin langt fram úr hófi.
<b>* Kveikjarinn var fundinn upp á undan eldspítunni.</b>
Var þá eldurin fundinn upp á eftir eldspýtunni?
<b> * 100% lottósigurvegara þyngjast.</b>
Af hverju er ég þá svona feitur? Aldrei hef ég unnið í Lottó!
<b>* 35% fólks sem nota einkamálaauglýsingar til að koma á stefnumótum eru þegar gift.</b>
Og 65% þeirra sem nota einkamálaauglýsingarnar í sama tilgangi hljóta þá alltaf að verða fyrir vonbrigðum...
<b> * Kvak andar bergmálar ekki, og enginn veit af hverju.</b>
Það er vegna hljóðmyndunarinnar. Kvakið er samansett úr fjölmörgum örhljóðum sem í raun eru það stutt en þétt saman að það nær ekki að mynda bergmálsendurómun... Ég er að bulla... ég hef ekki hugmynd um það!
<b>* 23% af öllum bilunum á ljósritunarvélum má rekja til þess að fólk situr á ljósritunarvélum til að ljósrita á sér botninn.</b>
Og ég sem hélt að þetta væri bara gert í bíó? Eru kannski 23% allra bilana á ljósritunarvélum í kvikmyndaverum?
<b>* Á meðaltalsæviskeiði munt þú, á meðan þú sefur, borða 70 margs konar pöddur og 10 kóngulær.</b>
Hvernig sósu er best að hafa með því?
<b>* 160 bílar geta keyrt hlið við hlið á breiðasta vegi í heimi í Brasilíu.</b>
Mundu bara að gefa stefnuljós og þú verður kominn heim eftir viku...
<b>* Flestir innihalda fiskhreistur.</b>
Rosalega er ég feginn að það voru ekki sporðdrekaoddar eða kattahár!
<b> * Þvag kattar glóir undir útfjólubláu ljósi.</b>
Og hvað voru þeir að gera þegar þetta var uppgötvað?
<b>* Kólibrífugl er léttari en bandarískt penní.</b>
Verðlaus sem sagt?
<b>* Líkt og fingraför, eru tunguför hvers manns ólík.</b>
Nú? eru menn þá farnir að setja tunguna á manni í stimpilpúða líka ef maður brýtur eitthvað af sér?
<b>* 90% þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogana.</b>
...bíddu... ég er alveg að ná...
Já, ég verð nú að segja fyrir mitt leiti að ég hef bara ljósritað á mér brjóstin, bila marga ljósritunarvélar við það?
Möguleikar netsins... Allt þroskahefta fólkið getur skemmt sér á kostnað geðheilsu annara!
Já og eins gott að þú kommentaðir, því ef maður gerir það ekki breytist maður í geit. En þar sem þú svaraðir mun einhver kyssa þig innan viku.
Ekki hafði ég hugmynd um það að þetta væri gamall keðjutölvupóstur. Aldrei hef ég fengið þetta í tölvupósti. Hins vegar þekki ég flestar þessara staðreynda og reyndar kann ég talsvert mikið meira. Það bíður félagsrits síðar.
Órækja, vissir þú að 47% allrar tölfræði verður til á staðnum. Og það held ég að sé tilfellið í þinni fullyrðingu. Sem sagt 32% allrar tölfræði verður til á staðnum.
Var ekki einhverntíman til þráður sem hét 'Áhugaverðir tenglar'?
Þar ætti þetta félagsrit heim - nú, eða í nýjum þræði 'Allt sem þig langaði aldrei neitt sérstaklega að vita - og meira til'.
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=2097
,,<i>[...] Á síðunum er oftar en ekki langur listi af svipuðum fullyrðingum, nokkurs konar gagnslaus fróðleikur, sem við nánari athugun er sjaldnast fróðlegur og oft einfaldlega rangur. Fræðimenn eru farnir að kalla slíkt "þjóðsögur nútímans" (e. urban legends). [...]</i>"
Ég veit bara að kvak andar bergmálar. Þetta er bara goðsögn og ég hef ekki hugmynd um hvers vegna.
"Flestir innihalda fiskhreistur."
Vantar ekki orðið "varalitir" þarna inn einhversstaðar?
Ég inniheld svo sannarlega fiskihreistur. Annars minni ég á að 81% allra tölfræðilegra fullyrðinga er uppspuni.
Ig Nóbell þeirra Harvard manna verðlaunar menn einmitt fyrir vísindarannsóknir af þessu tagi. Sem dæmi voru verðlaunin í líffræði (2003) veitt fyrir rannsóknir á samkynhneygðri nekrófílíu meðal stokkanda:
http://www.improb.com/ig/ig-top.html