Mikið vatn hefur runnið til sjávar og mörg andlit komið við hjá mér. En nú er mál að linni... í bili alla vega
Nokkur alteregó komu að máli við mig og báðu mig að tilkynna útlit mitt í sér félagsriti og verð ég að segja að það er mér ljúft og skylt að gera það. Hins vegar tel ég það algeran óþarfa.
Myndin sem um ræðir er af þeim tónlistarmanni sem er líklegast minnst metrósexual í sköpun tónlistar en hins vegar var hann ákveðinn frumkvöðull í tónlistar- og útlitsstefnu sem varð á ákveðnum tíma metrósexual. Maðurinn heitir <b>David Sylvian</b>
<img src="http://notorious.interfree.it/Japan_2.jpg">
Þetta var ekki fyrsta lúkkið en kannski það þekktasta. Eins og allir vita þá er þetta útlit sem varð óþægilega vinsælt...
önnur dæmi hér:
1979<img src="http://www.c-able.ne.jp/~gd4jhdmg/sylvian/top2.jpg">
1982<img src="http://www.c-able.ne.jp/~gd4jhdmg/sylvian/top3.jpg">
1993<img src="http://www.c-able.ne.jp/~gd4jhdmg/sylvian/top6.jpg">
1999<img src="http://www.c-able.ne.jp/~gd4jhdmg/sylvian/top4.jpg">
2004<img src="http://www.c-able.ne.jp/~gd4jhdmg/sylvian/top5.jpg">
Þetta er lúkk þróunin á manninum. Mér fannst álitlegast 1999 lúkkið og valdi það.
En ég ætla nú að taka mér pásu frá lúkkpælingum og halda mig við þetta í bili að minnsta kosti. ÉG er mjög ánægður með þetta lúkk og hananú! ÉG held að mér sé hollara að huga betur að skrifum mínum og framkomu í kjölfarið.
Afhverju sé ég gömlu myndina af Ívari Sívertsen í orðbelgnum hér fyrir ofan mig?
Annars flott mynd Ívar og til lukku...
Frábært nýja útlitið Ívar minn, Til hamingju, afhverju kemur gamla myndin í orðabelgjum. Gaman að fá svona söguskýringar með nýja útlitinu. Endilega koma upp þráð bæði með gömlu myndunum og eins líka sögu nýja útlitsins eins og þú gerir hér. Bara gaman.
[réttir Limbra eldhúsrúllublað svo hann geti þurrkað það sem hann snýtti út úr sér rétt í þessu] Vessgú Limbri
Þetta nýja útlit hræðir mig. Mér fannst eldri ívar svo traustvekjandi og vingjarnlegur.
Hver vill vera "traustvekjandi og vingjarnlegur", þegar hann getur verið "dularfullur og karlmannlegur". Muhahaha