Skemmtiefnið um lasna lúdósjúklinginn í Japan heldur áfram. Herskari manna fór þangað að sækja hann en kemur sneyptur til baka...
Nú eru íslensk stjórnvöld og bandarísk farin að spila borðtennis með vesslings kallinn hann Robba Slor. Íslendingar segja hann megi koma, kanarnir ætla þá að kæra hann fyrir fjársvik en þá koma íslendingar og ætla örugglega að gefa honum ríkisborgararéttinn sem var búið að hafna en þá vilja kanarnir bara láta lýsa eftir honum á heimsvísu sem alþjóðaglæpamanni. Leikurinn virðist tapaður hjá Robba kallinum hvernig sem borðtennisinn fer.
Það var áhugaverður pistill í dægurmálaútvarpi rásar 2 í gær þar sem talað var um það að kallinn væri svo klikkaður að eftir að hann kemur hingað (ef af verður) þá verði Sæmi rokk búinn að fá nálgunarbann á Slordónann áður en mánuður er liðinn.
Ég ítreka fyrri skrif mín um Robba að hann er ekkert heimsfrægur lengur nema hjá mjög þröngum hópi fólks. Hann er eiginlega bara heimsfrægur hjá íslendingum. Allt sem Íslendingum finnst heimsfrægt hlýtur þá að vera það annars staðar. Hvað ætli margir þekki Sigur rós í Sádí Arabíu? Ég held að þar séu fáir sem þekkja þá og að sama skapi Robba Slor. Robbi Slor held ég að sé meira að segja minna frægur en Quarashi á alþjóðavísu.
Drögum mannkertin heim sem ætluðu að ná í lúdókallinn og gleymum þessum vitleysingi og reynum frekar að fá einhverja almennilega fræga og flotta til að setjast hér að. Það er örugglega miklu einfaldara mál.
Skák og skál!
Hvaða voða áhyggjur eru þetta þó svo að eitt gamalt kallkvikindi komi hingað.
Gerið eins og Jesú og takið öllum fagnandi.