Ég hafði ritað heilmikla fréttaskýringu við fjelaxrit Hexiu um það hvers vegna ég drykki kaffi og ýmislegt því tengt. En þetta bévítans kerfi klúðraði því náttúrulega fyrir mér svo að hvorki mynd né texti birtust! (kannski var það minn klaufaskapur - ég veit það ekki) Ég vil hins vegar taka það fram að þetta eru ekki heimiliserjur heldur þörf umræða.
Í fjelaxriti sínu talar Hexia heillin mín um kaffifnyk. Ég vil svara þessum beinlínis ásökunum og aðdróttunum.
Hexia mælti:
<i>Til að kóróna vandamálið, þá er ég gift einum mesta kaffisvelg þjóðarinnar, Ívari Sívertsen sem þið þekkið væntanlega flest. Ívari þykir kaffisopinn ekki aðeins góður, heldur leggur hann metnað sinn í að hafa kaffið sem sterkast. Og ég sem var alin upp á heimili þar sem kaffið er í þynnra lagi. Ojæja.</i>
Á þínu æskuheimili er kaffið þannig úr garði gert að það lítur út fyrir að vera prestakaffi þegar búið er að setja brennivínið út í!
-
skýring:
Prestakaffi er þannig að peningur er settur á botn bollans og sterku kaffi hellt þar til peningurinn hættir að sjást en síðan er brennivíni hellt út í þar til peningurinn sést aftur.
-
Á þínu æskuheimili er hins vegar aldrei brennivín í kaffinu!
Hexia mælti enn fremur:
<i>Sambúðin við Ívar og kaffið hefur gengið nokkuð stóráfallalaust fyrir sig hingað til. En nú eru blikur á lofti. Ívar hefur nefnilega tekið upp á þeim óskunda að vilja fara eldsnemma á fætur til að komast í kjötheima áður en allir vakna þar á bæ. Hann hefur bitið það í sig að í eina viku á þriggja vikna fresti þurfi hann endilega að vera fyrstur á fætur í kjötheimum. Til þess að honum takist að halda sér vakandi á ferðalaginu yfir í kjötheima, þarf hann að fá koffínskammt. Stóran koffínskammt.</i>
Það er einföld og mjög lógísk heimspeki á bak við þetta Hexia! Ef þú vilt ekki lesa um örlög mín í blöðunum þá er þetta nauðsynlegt!
<img src="http://www.mikkivefur.is/hallur/uniform.jpg">
Jú, ég keyri strætó og þarf að vera vakandi við mína vinnu!
Og Hexia tuðaði enn:
<i>Þannig æxlaðist það semsagt, að þar sem ég ligg í rúminu mínu einn morguninn og er hvorki stödd í Baggalútíu né kjötheimum - heldur Draumalandinu - að ég er vakin á mjög svo óþyrmilegan hátt. Ekki var það hann Ívar minn sem ýtti við mér (né heldur kveikti hann loftljósið eins og gerðist einu sinni) og ekki var það heldur önnur hvor dóttirin sem hoppaði á mér. Nei, það var lykt. Alveg hrikalega vond lykt. <b>Kaffilykt!</b></i>
Opnaðu gluggann!
Óttalega getur Hexia þusað:
<i>Allir sem einhvern tíma hafa horft á teiknimyndir vita hvernig lyktin ferðast frá upprunastað sínum og leitar uppi nef sem þarf að vekja. Þetta var þannig lykt. Hún hafði form. Ég gat séð hana, og næstum þreifað á henni.</i>
Þannig er góður kaffiilmur! Hann á að líða ljúft um vitin og reisa mann upp til móts við nýjan dag og fagra sólarupprás!
Og enn þvaðrar Hexia:
<i>Blessaður kallinn minn hann Ívar hafði þá hellt upp á svo sterkt og þykkt kaffi, að ef það hefði verið einum vatnsdropanum færra í kaffinu þá hefði mixtúran verið þurrari en sjálf Sahara-eyðimörkin.</i><b>[ÞETTA ERU FORDÓMAR!]</b> <i>Til að bæta gráu ofan á kaffibrúnsvart, þá hafði slatti af kaffinu hellst útfyrir og á eldavélarhelluna (Ívar notar svokallaða "mittiskönnu" til að matreiða kaffið sitt). Brennt, sterkt kaffi hafði semsagt verið orsökin fyrir þessari fýlu sem lagðist yfir íbúðina klukkan 5 um morguninn. Mér var ekki skemmt.</i>
Eins og ég sagði áðan OPNAÐU GLUGGANN!
Ætlar hún aldrei að hætta?!?:
<i>Mér var heldur ekki skemmt þegar ég uppgötvaði að ég gat ómögulega sofnað aftur (það var greinilega stór skammtur af koffíni í þessari stækju) og enn síður var mér skemmt þegar mér fór að verða illt í maganum. Alvarlega illt í maganum.</i>
Þetta eru náttúrulega ýkjur Hexia! Þú þarft að leita læknis ef kaffilykt fer svona illa í magann á þér!
Hexia lýkur máli sínu svona:
<i>Ég ætla að fara á fund Þorgríms Þráinssonar eftir helgi og biðja hann að láta banna kaffi rétt eins og reykingar. Þetta er allt saman eitur.</i>
Kaffi hefur einn ótvíræðan kost. Það er ekki í fyrirferðarmiklum plastbrúsum sem fylla skápa og síðan geymslur. Kaffipakki er mjög hentugt fyrirbæri sem rúmar margfalt fleiri skamta af kaffi.
Pakkinn með kaffibaununum sem ég kaupi alltaf kostar ríflega 500 krónur og dugar mér í a.m.k. tvær vikur. En tveggja lítra kóktankur eins og oftast er keyptur á mitt heimili klárast á einum til tveimur dögum og kostar líklega 250 krónur..
Kaffi hefur líka þann kost að það er sykurlaust að uppruna og því ekki eins skaðlegt fyrir tennur og önnur líkamleg atriði.
Þar sem Hexia er forfallinn Coca Cola sjúklingur þá vil ég nefna að ég er það sem kanar myndu kalla Vertically challenged og þyrfti að minnka ummál mitt. Ég held að það vandamál myndi versna ef ég færi að drekka kók í morgunsárið heldur en kaffið kaldstartar mér á morgnanna. Enn fremur vil ég benda á að þetta gerist í aðeins þriðjungi vikna á árinu.
Ágæti lesandi. Hafi Hexia sannfært þig um að þörf sé á því að fara til Togga Tóbaks og biðja um að kaffi verði sett á lista hinna staðföstu og eitruðu efna þá vil ég biðja þig að íhuga það að þar ætti Coca Cola miklu frekar heima sem einn mesti tannskaðvaldur og magaummálsviðbætandi sem sögur fara af. Það hefur verið sannað með vísindalegum rannsóknum að kók er margfalt meira ávanabindandi en kaffi. Það er ekki hægt að þynna kókið til þess að draga úr áhrifum þess en kaffið má þynna. Það má jafnvel gera því skóna að kaffið á æskuheimili Hexiu sé tilvalið til kaffiafvötnunarmeðferðar.
Kaffi er hluti af mínu lífi og mér finnst það gott! Ég nota engin eiturlyf utan áfengis og því má þetta vera mitt dóp!
En fariði nú að gera eitthvað uppbyggilegra eins og að lesa önnur fjelaxrit!
Þetta er að sjálfsögðu með öllu óþolandi. Ég var rétt í þessu að fá mér það sem ég kalla Columbia kaffi, en það er rótsterkt svart kaffi af venjulegri tegund. Þegar ég hef stráð eins og 0,2 mg af sterku lyftidufti frá Litháen í kaffið þá er það sko almennilegt kaffi. Svo þarftu að þola röfl vegna indælis kaffiilms. Fyrr má aldeilis fyrrvera.
Voðalegir koffín fíklar eruð þið bæði tvö.
Ég drekk hvorki kók né kaffi.. hefur aldrei fundist þetta gott. Drekk reyndar afar takmarkað af gosi.. einna helst út í bland.
Ég segi bara vatn og djús eða safi! Það er málið.
Æ elsku Ívar, óttalega tókstu þetta nærri þér.
a) Ég var aðeins að lýsa þeim vanda sem fylgir því að hafa ofnæmi fyrir kaffidrykkju sem og sterkri kaffilykt.
b) Mér finnst ókurteisi að hafa aðeins kaffi á boðstólum á almennum samkomum.
c) Þegar lyktin er jafn sterk og ég lýsti, þá dugar ekki að opna gluggann. Ég reyndi það, ég opnaði alla glugga sem ég komst í. Lyktin var bara of massív til að komast út.
Ef kaffi væri lyktarlaust væri mér alveg sama (kók er þó lyktarlaust, þó það hafi ýmsa aðra ókosti). Og ef hægt væri að bjóða upp á eitthvað annað en heita brúna magasteypu á almennum samkomum, þá væri mér líka sama.
Góðar stundir.
Jeg vaknaði í morgun
Í ljettu skapi var
að líta inn á búllur
samkvæmt vana...
(NB: Af einhverjum orsökum virðist ekki vera mögulegt að leggja fleiri orð í belg við félagsrit Hexíu, þarsem hún kvartar sáran yfir tilvist kaffis & meðhöndlun þess á heimili sínu. Almennt séð er eftirfarandi það sem ég vildi sagt hafa af því tilefni - læt það hér & treysti því að það komist rétta boðleið.)
Eitt vil ég leggja til málanna, ágæta vinkona. Ef kaffis nyti ekki við, væri heldur ekki til neinn kaffilíkjör á borð við t.d. Kahlúa.
Need I say more - Vitið þér enn eða hvað?
hm... þú segir nokkuð Natan minn. Ég fer samt ekki ofan af því að lyktin af Kahlúa er ívið betri en lyktin af sterku kaffi. Eiginlega svolítið mikið betri... Er ekki hægt að búa til lyktarsnautt kaffi, hm?
Nei! þá væri þetta bara hálfur unaður því að lyktin er stór hluti kaffidrykkju!
Hexía og Ívar gætu kannski mæst á miðri leið og drukkið saman Kahlúa á morgnana?
[leggur Græna kortinu sínu og fer á reiðhjólauppboð]