Ég fékk formagnara fyrir plötuspilarann minn í jólagjöf!
Ég hef verið að hlusta á gömlu vínilplöturnar mínar upp á síðkastið og fann ég í farteski mínu hljómplötu með Helga Pálma Aðalsteini Gunnarssyni. Þessi plata heitir Hvers vegna varst'ekki kyrr? . Ég skemmti mér alveg rosalega við að hlusta á þá plötu enda eru þar gullkorn á borð við Hver vegur að heiman, Hvers vegna varst'ekki kyrr og að ógleymdu laginu Andartak sem einnig birtist í bíómyndinni Veiðiferðin eftir Andrés Indriðason. Textarnir á þessari plötu eru hins vegar ekki burðugir en miðað við frá hvaða tíma þessi plata er þá eru þeir alveg skelfilega fyndnir. Í lagi sem heitir Ef (jam) er viðlagstextinn alger perla.
Viðlagið er svona:
[listi]Ég yrði ljós án birtu
ljóð án orða
og lag án tóns
plata án fóns
hún Gunna án Jóns
Ég yrði regn án vætu
rok án vinda
eða selur án skers
sæng án vers
eða rúða án glers[/listi]
Ég mæli með því að ef menn eiga gamlar vínilplötur en hafa ekki átt kost á þvíað hlusta á þær lengi að verða sér úti um tæki til þess og fara að hlusta því þetta er hin besta skemmtun. Hljómurinn er mun tærari en á geisladiskum því að á hljómplötum er ekkert digital suð eins og það kallast á fagmáli.
Tónlistasmekkur minn var frekar dapur þegar ég keypti enn vínilplötur... hlusta þó á Rut Reginalds annað slagið...
"það er algjör vitleysa að reykja..."
Duran Duran, Black Sabbath, Whitesnake, Wham, A-Ha og svo heill haugur af litlum plötum sem konan mín bætti í safnið.