Ný mynd? Sami bullukollurinn!
Á nýju ári er vel við hæfi að gera breytingar. Í þetta sinn hef ég ákveðið að hætta að vera teiknaður og verða ljósmyndaður. En grænn verð ég áfram líkt og flest eðalmenni hér á Baggalúti. Og það er líklegt að einhverjir komi til með að þekkja kauðann á myndinni. Svo er aldrei að vita nema nafnið taki einhverjum breytingum en það á enn eftir að ákveða það og mannanafnanefnd hafnaði síðustu átján tillögum. En alla vega næst þegar við verðum með samkomu á vegum lútsins þá þarf enginn að velkjast í vafa um hver Ívar Sívertsen er!
Þetta er kúl. Þú ert líkur sjarmatröllinu Herbert Guðjóns á myndinni, sérstaklega með sólgleraugun. Í guðanna bænum ekki skipta um nafn. Þú ert það rótskotinn hér að nafnaskipti þín myndu snúa öllu á hvolf.
Þú ert líklega að vísa í Herbert Guðmundsson...
Og ekkert mál... ég skal ekkert vera að breyta nafninu
Æj, vitlaus er ég Guðmunds var það. Ófyrirgefanlegt að ruglast á nafni þeirrar þjóðargersemi.
Mjög Matrixleg sólgleraugu. Svalt. Ég var samt farinn að venjast hinum fýrnum.
Ívar skiftu um mynd alveg eins og skot, get aldrei litið þig réttu ljósi með þessa herbergerber vitleysu í frontinum. þú átt völina við hin kvölina. pleeeeeaaaassseeeee. alveg á skeljunum.
Alveg var mig sosum búið að gruna lengi eithvað í þessa veruna... takk fyrir síðast (Hafnarfjörður fyrir ca. mánuði síðan).
Jæja, það eru allir að koma úr skelinni... ekki ég... til lukku með nýju myndina... og ekki breyta nafninu... Skál kallinn...
Frekar bara Gütenberg eða Síðu-Hallur. Ekki Herbert. Það er ekki viðeigandi.
þakka stuðninginn Skabbi minn, jafnaðargeð þitt ríður ekki við einteyming, hverju sem það er að þakka.
Kunni strax vel við nýja smettið, enda kannast ég við það frá fornu fari einhversstaðar í fjandanum frá. En nafninu skaltu halda, það er bara eins gott.
Já.. ég hef nú séð þennan mann áður
*ljómar upp*
Þetta er ágætt... ekki vill ég nú samt koma svona mikið út úr kústaskápnum.
Þetta er stórfurðulegt. Nú gerist það í annað sinn á stuttum tíma að vér fáum það á tilfinninguna að vér höfum séð einhvern hér utan Gestapó [Klórar sér í höfðinu]. Vér höfum vissar efasemdir um þessa þróun, a.m.k. munum vér sökum öryggis ríkisins eigi taka oss þetta til fyrirmyndar [Starir þegjandi út í loftið].